„Ritverk Árna Árnasonar/Kveðið við Kötlu og fleira“: Munur á milli breytinga
(Ný síða:

::::::Úr fórum Árna Árnasonar
Starf Árna á Vestmannaeyjaradíó fólst ekki einungis í samskiptum við flotann, heldur var oft um fjarskipti við lan...) |
Ekkert breytingarágrip |

(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum) | |||
Lína 4: | Lína 4: | ||
::::::Úr fórum Árna Árnasonar | ::::::Úr fórum Árna Árnasonar | ||

Starf Árna á Vestmannaeyjaradíó fólst ekki einungis í samskiptum við flotann, heldur var oft um fjarskipti við land að ræða, eins og t.d. var í júní 1955, þegar rannsóknarleiðangur undir stjórn Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings hélt á Mýrdalsjökul til rannsókna á Kötlu. Þeir voru í talstöðvarsambandi við Vestmannaeyjaradíó allan tímann. Þegar þeim leiðangri var um það bil að ljúka, fengu leiðangursmenn eftirfarandi kveðju frá Árna Árnasyni:
| Starf Árna á Vestmannaeyjaradíó fólst ekki einungis í samskiptum við flotann, heldur var oft um fjarskipti við land að ræða, eins og t.d. var í júní 1955, þegar rannsóknarleiðangur undir stjórn Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings hélt á Mýrdalsjökul til rannsókna á Kötlu. Þeir voru í talstöðvarsambandi við Vestmannaeyjaradíó allan tímann. Þegar þeim leiðangri var um það bil að ljúka, fengu leiðangursmenn eftirfarandi kveðju frá Árna Árnasyni (Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara frá [[Grund]]. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012):

::::Kötlufarar, Mýrdalsjökli. – Frá VM radio.
| ::::Kötlufarar, Mýrdalsjökli. – Frá VM radio.

Lína 50: | Lína 50: | ||

::::::Gamli kakósöngurinn á Klifinu. | |||
::::::Uppi á Klifinu sælt er að sitja, | |||
::::::þegar sólin á himninum skín, | |||
::::::Vínarpylsur og brauðið að brytja, | |||
::::::því bæði hafa þau D-vítamín. | |||
::::::Frammi á brúninni Slommubjartur slæpist | |||
::::::og stelur myndum af litfögrum fýl. | |||
::::::Hvernig færi, ef drengurinn dræpist? | |||
::::::Það yrði að drasla honum strax heim í bíl. | |||
::::::Gísli mundi grafa honum holu, | |||
::::::Geiri mundi semja einn brag, | |||
::::::gæðamennið Gvendur í Volu | |||
::::::gjöra mundi steinsteypulag | |||
::::::yfir hans Slommbjartar snarla | |||
::::::sem var sniðugur drengur og klár. | |||
::::::En vér hyggjum í heiminum varla | |||
::::::myndi hrynja eitt einasta tár. | |||
::::::(Höfundur og tilefni óþekkt) | |||
{{Árni Árnason}} | {{Árni Árnason}} |
Núverandi breyting frá og með 20. ágúst 2013 kl. 15:28
- Úr fórum Árna Árnasonar
Starf Árna á Vestmannaeyjaradíó fólst ekki einungis í samskiptum við flotann, heldur var oft um fjarskipti við land að ræða, eins og t.d. var í júní 1955, þegar rannsóknarleiðangur undir stjórn Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings hélt á Mýrdalsjökul til rannsókna á Kötlu. Þeir voru í talstöðvarsambandi við Vestmannaeyjaradíó allan tímann. Þegar þeim leiðangri var um það bil að ljúka, fengu leiðangursmenn eftirfarandi kveðju frá Árna Árnasyni (Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012):
- Kötlufarar, Mýrdalsjökli. – Frá VM radio.
- Kötlufarar, Mýrdalsjökli. – Frá VM radio.
- Það mun ekki heiglum hent
- hjá að gista Mýrdals-Kötlu,
- þó bóndann hafi burtu sent
- og brosi, rúin hverri pjötlu.
Þessu var að sjálfsögðu ekki látið ósvarað og til baka kom þetta, bókað hjá
Vm-radíó:
Eftirfarandi kveðja móttekin á VM radio kl. 18:30 21.6. frá snjóbílnum R-345, staddur á miðjum Mýrdalsjökli, vestan við Kötlu:
- Njótum lífsins ekki um of,
- er það bagi,
- að hlýrra skuli Kaldaklof
- en Kötlumagi.
- S. Þórarinsson o.fl.
- Áfram héldu leiðangursmenn að senda ljóðmæli
- til símritarans í Vestmannaeyjum. Næst kom þetta
- og fyrst vikið að umræðu um landsmál,
- áður en sagt er frá líðan leiðangursmanna:
- Áfram héldu leiðangursmenn að senda ljóðmæli
- Sparnað kunnum mjög að meta,
- mun nú borgið landsins högum,
- ef að þingmenn okkar éta
- aðeins snjó á tyllidögum.
- Liggjum undir háum hól
- í hlé´i fyrir norðan gjóstum,
- nú er þerrir, nú er sól,
- nú er gott á Kötlubrjóstum.
- Og síðasta sendingin frá þeim félögum
- á jöklinum var þannig, og vistin greinilega
- orðin erfið á jöklinum:
- Og síðasta sendingin frá þeim félögum
- Kúrum hér í krapi og snjó,
- klén er matarlystin.
- Erum kverkaþurrir þó,
- þykir blautleg vistin.
- Jón Eyþórsson, Sigurður Þórarinsson
- Sigurjón Rist, Guðmundur Jónasson, Jean Martin.
- Jón Eyþórsson, Sigurður Þórarinsson

- Gamli kakósöngurinn á Klifinu.
- Uppi á Klifinu sælt er að sitja,
- þegar sólin á himninum skín,
- Vínarpylsur og brauðið að brytja,
- því bæði hafa þau D-vítamín.
- Frammi á brúninni Slommubjartur slæpist
- og stelur myndum af litfögrum fýl.
- Hvernig færi, ef drengurinn dræpist?
- Það yrði að drasla honum strax heim í bíl.
- Gísli mundi grafa honum holu,
- Geiri mundi semja einn brag,
- gæðamennið Gvendur í Volu
- gjöra mundi steinsteypulag
- yfir hans Slommbjartar snarla
- sem var sniðugur drengur og klár.
- En vér hyggjum í heiminum varla
- myndi hrynja eitt einasta tár.
- (Höfundur og tilefni óþekkt)