„Ásmundur Guðjónsson (forstjóri)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
m (Viglundur færði Ásmundur Guðjónsson á Ásmundur Guðjónsson (forstjóri)) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 21. febrúar 2020 kl. 17:57
Ásmundur Guðjónsson fæddist 31. desember 1903 og lést 12. júní 1964. Kona hans var Anna Friðbjarnardóttir, þekktari sem Bíbí. Þau bjuggu á Stóra Gjábakka við Bakkastíg.
Ásmundur var umboðsmaður Olís í Eyjum og var hann oftast kallaður Ásmundur greifi. Viðurnefnið mun hann hafa fengið vegna þess hve mikið snyrtimenni hann var í klæðaburði.
Einn sona þeirra hjóna er Atli, sendiherra Íslands í Kanada. Atli hlaut viðurnefnið í arf frá föður sínum og var ævinlega kallaður Atli greifi.