„Blik 1962/Úr ríki náttúrunnar“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Blik 1962/Úr ríki náttúrunnar“ [edit=sysop:move=sysop]) |
Ekkert breytingarágrip |

(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum) | |||
Lína 4: | Lína 4: | ||
Úr ríki náttúrunnar | |||

Lína 12: | Lína 12: | ||
V.b. Jón Stefánsson, skipstjóri [[Sigurður Elíasson]], fékk á netavertíð (30. marz 1961), stóra földung í net. Hann var 175 cm á lengd. Fiskurinn skemmdist við netavinduna og var því eigi hirtur í fiskasafn Gagnfræðaskólans.
| V.b. Jón Stefánsson, skipstjóri [[Sigurður Elíasson]], fékk á netavertíð (30. marz 1961), stóra földung í net. Hann var 175 cm á lengd. Fiskurinn skemmdist við netavinduna og var því eigi hirtur í fiskasafn Gagnfræðaskólans.

Margar sandhverfur hafa veiðzt við Eyjar á þessu ári og hefur skólinn látið setja eina upp. Hér birtum við mynd af henni. Einnig hefur skólinn látið setja upp blákjöftu. Báðir þessir síðast nefndu fiskar veiddust á v b. Tý, skipstj. [[Karl Ólafsson]], og gaf skipshöfnin skólanum fiskana. Við kunnum henni beztu þakkir fyrir.
| Margar sandhverfur hafa veiðzt við Eyjar á þessu ári og hefur skólinn látið setja eina upp. Hér birtum við mynd af henni. Einnig hefur skólinn látið setja upp blákjöftu. Báðir þessir síðast nefndu fiskar veiddust á v b. Tý, skipstj. [[Karl Ólafsson]], og gaf skipshöfnin skólanum fiskana. Við kunnum henni beztu þakkir fyrir.

[[Guðni Gunnarsson | [[Guðni Gunnarsson (Horninu)|Guðni Gunnarsson]], fiskifræðingur, sem er gamall nemandi gagnfræðaskólans, hefur tvívegis fært skólanum að gjöf amerískar skeljar og kuðunga, sem mikill fengur er að í safni skólans.

[[Mynd: 1962, bls. 9 A.jpg|350px|left|thumb|''Fiðrildasafnið, sem Kristján Egilsson gaf skólanum.'']] | [[Mynd: 1962, bls. 9 A.jpg|350px|left|thumb|''Fiðrildasafnið, sem Kristján Egilsson gaf skólanum.'']] |
Núverandi breyting frá og með 28. september 2021 kl. 20:33
Við þykjumst hafa orðið þess áskynja, að meira hefur veiðzt af sjaldgæfum fiskum við Eyjar á þessu ári en oftast áður. Hér skulu nefndir þeir helztu:
V.b. Jón Stefánsson, skipstjóri Sigurður Elíasson, fékk á netavertíð (30. marz 1961), stóra földung í net. Hann var 175 cm á lengd. Fiskurinn skemmdist við netavinduna og var því eigi hirtur í fiskasafn Gagnfræðaskólans.
Margar sandhverfur hafa veiðzt við Eyjar á þessu ári og hefur skólinn látið setja eina upp. Hér birtum við mynd af henni. Einnig hefur skólinn látið setja upp blákjöftu. Báðir þessir síðast nefndu fiskar veiddust á v b. Tý, skipstj. Karl Ólafsson, og gaf skipshöfnin skólanum fiskana. Við kunnum henni beztu þakkir fyrir.
Guðni Gunnarsson, fiskifræðingur, sem er gamall nemandi gagnfræðaskólans, hefur tvívegis fært skólanum að gjöf amerískar skeljar og kuðunga, sem mikill fengur er að í safni skólans.
Í haust kom ungur Vestmannaeyingur úr siglingum. Hann hafði m.a. siglt til Brasilíu. Þar keypti hann uppsett fiðrildi, sem hann færði gagnfræðaskólanum að gjöf, er heim kom. Piltur þessi er Kristján Egilsson Árnasonar, Hólagötu 19 hér í bæ.
Margir nemendur mínir hafa fært skólanum ýmsar ómetanlegar gjafir úr skauti náttúrunnar, svo sem skeljar og kuðunga. Einnig hefur Ingimar Óskarsson gefið skólanum sjaldgæfa kuðunga.
Öllum þessum gefendum færum við alúðarfyllstu þakkir fyrir hinar góðu og kærkomnu gjafir. Verði framvegis haldið fram á sömu braut, eignumst við Eyjabúar fjölbreytt náttúrugripasafn til fræðslu, gagns og menningar öllum, sem hér búa.
- 30. 12. 1961.