„Beinafundurinn 1978“: Munur á milli breytinga
mEkkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
(7 millibreytingar ekki sýndar frá 5 notendum) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
Þann 27. apríl 1978 fundust tvær beinagrindur, á um 3 metra dýpi, þegar verið var að grafa skurð fyrir nýju holræsi sem átti að fara í gegnum [[Þrælaeiði| | Þann 27. apríl 1978 fundust tvær beinagrindur, á um 3 metra dýpi, þegar verið var að grafa skurð fyrir nýju holræsi sem átti að fara í gegnum [[Þrælaeiði|Eiðið]]. Engin ummerki um kistuleifar voru sjáanlegar á staðnum. Seinna var komist að því, samkvæmt athugunum Jóns Steffensens, að um væri að ræða tvo karla; ungan karlmann annars vegar og 15-18 ára pilt hins vegar. | ||
Oft áður hafa fundist mannabein á þessum slóðum og hefur komið upp sú kenning að þetta svæði | Oft áður hafa fundist mannabein á þessum slóðum og hefur komið upp sú kenning að þetta svæði hefði verið kallað [[Klemensareyri]] fyrr á tíð og eflaust þar áður [[Hörgaeyri]]. Möguleiki væri á að þarna var að ræða kirkjugarð [[Klemensarkirkja|Klemenzkirkju]], sem var á öldum áður í Vestmannaeyjum. Sagt er að Hjalti Skeggjason og Gissur Ísleifsson hafi reist kirkju á Hörgeyrinni. | ||
Aðra tilgátu kom [[Friðrik Jesson]], þáverandi safnvörður [[Náttúrugripasafnið|Náttúrugripasafnsins]], með um að þarna væru líkamsleifar þeirra sem féllu í átökum Englendinga og Þjóðverja í Eyjum. Þeir börðust hér allgrimmilega um kaup á skreið og aðstöðu til verslunar og fiskveiða hér á landi á síðari hluta miðalda. | |||
Beinin voru send í aldursgreiningu í Tækniháskóla Noregs í Þrándheimi árið 1986. Notast var við | Beinin voru send í aldursgreiningu í Tækniháskóla Noregs í Þrándheimi árið 1986. Notast var við geislakolaaldursgreiningu (¹⁴C) og komist að því að líklegt væri að beinin séu frá 15. öld. | ||
{{Heimildir| | |||
* Margrét Hermanns-Auðardóttir. | * Margrét Hermanns-Auðardóttir. Hagsmunaátök í Eyjum á ofanverðum miðöldum. ''Eyjaskinna - 5. rit'' (bls. 44-60). Vestmannaeyjum: Prentsmiðjan Eyrún, 1992. | ||
}} | |||
[[Flokkur:Saga]] |
Núverandi breyting frá og með 4. september 2006 kl. 14:33
Þann 27. apríl 1978 fundust tvær beinagrindur, á um 3 metra dýpi, þegar verið var að grafa skurð fyrir nýju holræsi sem átti að fara í gegnum Eiðið. Engin ummerki um kistuleifar voru sjáanlegar á staðnum. Seinna var komist að því, samkvæmt athugunum Jóns Steffensens, að um væri að ræða tvo karla; ungan karlmann annars vegar og 15-18 ára pilt hins vegar.
Oft áður hafa fundist mannabein á þessum slóðum og hefur komið upp sú kenning að þetta svæði hefði verið kallað Klemensareyri fyrr á tíð og eflaust þar áður Hörgaeyri. Möguleiki væri á að þarna var að ræða kirkjugarð Klemenzkirkju, sem var á öldum áður í Vestmannaeyjum. Sagt er að Hjalti Skeggjason og Gissur Ísleifsson hafi reist kirkju á Hörgeyrinni.
Aðra tilgátu kom Friðrik Jesson, þáverandi safnvörður Náttúrugripasafnsins, með um að þarna væru líkamsleifar þeirra sem féllu í átökum Englendinga og Þjóðverja í Eyjum. Þeir börðust hér allgrimmilega um kaup á skreið og aðstöðu til verslunar og fiskveiða hér á landi á síðari hluta miðalda.
Beinin voru send í aldursgreiningu í Tækniháskóla Noregs í Þrándheimi árið 1986. Notast var við geislakolaaldursgreiningu (¹⁴C) og komist að því að líklegt væri að beinin séu frá 15. öld.
Heimildir
- Margrét Hermanns-Auðardóttir. Hagsmunaátök í Eyjum á ofanverðum miðöldum. Eyjaskinna - 5. rit (bls. 44-60). Vestmannaeyjum: Prentsmiðjan Eyrún, 1992.