„Sigurður Bjarnason (Hofsnesi)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Sigurður Bjarnason (Hofsnesi)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |

| Lína 11: | Lína 11: | ||
I. Kona Sigurðar, (1966, skildu 1980), er [[Álfheiður Ósk Einarsdóttir]] frá [[Bjarmahlíð]], húsfreyja, f. 28. október 1943.
| I. Kona Sigurðar, (1966, skildu 1980), er [[Álfheiður Ósk Einarsdóttir]] frá [[Bjarmahlíð]], húsfreyja, f. 28. október 1943.

Börn þeirra:
| Börn þeirra:

1. Bjarni Diðrik Sigurðsson á Selfossi, með doktorspróf í skógfræði, prófessor á Hvanneyri, f. 8. mars 1966. Kona hans Anna Jónsdóttir frá Hellu.
| 1. [[Bjarni Diðrik Sigurðsson]] á Selfossi, með doktorspróf í skógfræði, prófessor á Hvanneyri, f. 8. mars 1966. Kona hans Anna Jónsdóttir frá Hellu.

3. Einar Rúnar Sigurðsson ferðaþjónustubóndi í Hofsnesi í Öræfum, fer með fólk á Hvannadalshnjúk, f. 26. júlí 1968. Kona hans Matthildur Unnur Þorsteinsdóttir [[Þorsteinn Pálmar Matthíasson|Matthíassonar]].
| 3. [[Einar Rúnar Sigurðsson]] ferðaþjónustubóndi í Hofsnesi í Öræfum, fer með fólk á Hvannadalshnjúk, f. 26. júlí 1968. Kona hans [[Matthildur Unnur Þorsteinsdóttir]] [[Þorsteinn Pálmar Matthíasson|Matthíassonar]].

4. Eyrún Ósk Sigurðardóttir leikskólakennari, býr á Canaryeyjum, f. 17. september 1972. Barnsfaðir hennar Moshe Biton. | 4. [[Eyrún Ósk Sigurðardóttir]] leikskólakennari, býr á Canaryeyjum, f. 17. september 1972. Barnsfaðir hennar Moshe Biton frá Ísrael. | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
Núverandi breyting frá og með 13. mars 2025 kl. 14:12

Sigurður Bjarnason frá Svínafelli í Öræfum, bóndi á Hofsnesi þar, vörubílstjóri, sjómaður, frumkvöðull fæddist 12. nóvember 1932 og lést 17. janúar 2020 í Hjúkrunarheimilinu Skjólgarði á Höfn í Hornafirði.
Foreldrar hans voru Bjarni Sigurðsson bóndi, f. 1. ágúst 1899 á Hofsnesi, d. 13. mars 1985, og kona hans Lydía Angelíka Pálsdóttir húsfreyja, ljósmóðir, f. 18. ágúst 1899 á Svínafelli, d. 5. janúar 1969.
Sigurður var með foreldrum sínum.
Hann vann sveitastörf, var sjómaður í Eyjum, bifreiðastjóri við lagningu hringvegarins, var þungavinnuvélstjóri. Sigurður hætti sauðfjárbúskap 1988, rak refarækt og var sláturhússstjóri. Síðan hóf hann að fara með ferðafólk á heykerru í Ingólfshöfða.
Sigurður var áhugamaður í skógrækt, var félagi í Landgræðslufélagi Öræfinga, safnaði birkifræi í Bæjarstaðaskógi og sáði.
Þau Álfheiður giftu sig 1966, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Hofsnesi, á Stokkseyri, í Eyjum og aftur í Hofsnesi, en skildu 1980.
Sigurður lést 2020.
I. Kona Sigurðar, (1966, skildu 1980), er Álfheiður Ósk Einarsdóttir frá Bjarmahlíð, húsfreyja, f. 28. október 1943.
Börn þeirra:
1. Bjarni Diðrik Sigurðsson á Selfossi, með doktorspróf í skógfræði, prófessor á Hvanneyri, f. 8. mars 1966. Kona hans Anna Jónsdóttir frá Hellu.
3. Einar Rúnar Sigurðsson ferðaþjónustubóndi í Hofsnesi í Öræfum, fer með fólk á Hvannadalshnjúk, f. 26. júlí 1968. Kona hans Matthildur Unnur Þorsteinsdóttir Matthíassonar.
4. Eyrún Ósk Sigurðardóttir leikskólakennari, býr á Canaryeyjum, f. 17. september 1972. Barnsfaðir hennar Moshe Biton frá Ísrael.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Álfheiður Ósk.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið 30. janúar 2020. Minning.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.