„Úr fórum Árna Árnasonar. Verk annarra/Lausavísur“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: <br> <br> <br> <center> Úr fórum Árna Árnasonar</center> <big><big><center>Lausavísur </center></big></big> Eftirfarandi vísur hef ég heyrt hér í Eyjum. Höfundarnir eru m...) |
m (Verndaði „Úr fórum Árna Árnasonar. Verk annarra/Lausavísur“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 8. október 2013 kl. 17:06
Eftirfarandi vísur hef ég heyrt hér í Eyjum. Höfundarnir eru mér algjörlega ókunnir og efast ég um, að þeir séu yfirleitt þekktir. Ekki er kveðskapur þessi listrænn, en úr Eyjum mun hann vera og því tekinn hér.
- Helgi missti háf undir borði
- hann var gildur mánaðarforði.
- Kættist lítið Kristín í Gerði
- kallar slíkt ei ábataferðir.
- Það er grey og svívirt svei,
- svaraði pey-i skjalda.
- Eg vil fleyi að Elliðaey
- engan vegin halda.
- Eiríkur minn frá Árnagerði
- upp á Vertshúsið skunda réð.
- Keypti kaffi við vægu verði,
- víst hef ég þetta heyrt og séð.
- Sex skildinga var bollinn bert,
- bæði var kaffið heitt og sterkt.
- Stóra mastrið stend ég við,
- storminn fast í góni.
- Aflið rasar, út á hlið
- öldu kastar ljóni.
- Viltu í nefið vinur fá,
- veit ég kvefið minnkar þá.
- Mærðarstefið mitt skal tjá,
- mér var gefið baukinn á.
- Fúsi í Holti sendi Svein
- sína að vekja drengi.
- Í húsum flestum heyrðist vein,
- sem hljómaði skært og lengi.
- Brögnum flestum blöskraði,
- hvað blundaði þundur stála.
- Átján sinnum öskraði
- í hann Svein á Skála.
- Hollenski konsúllinn hýddur var
- eina heiðskýra vetrarnótt.
- Blóðugan rassinn í burtu bar
- og bölvaði feikna gnótt.
- Nú á haustum hörmungar
- hanga í naustum fleyturnar.
- Tindar traustir tigninnar,
- titra í vindi skelfingar.
- Ýtar brátt á ufsahlað
- ýttu knör frá ströndum.
- En Gísli í Kornhól gekk af stað
- til að gæta að Hönnu á Löndum.
- Stelur, felur, smellinn smígur,
- smjaðrar, þvaðrar, alla tíð.
- Klagar, jagar, kjaftar, lýgur,
- kellinn, brellinn, ár og síð.