Úr fórum Árna Árnasonar. Verk annarra/Lausavísur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit




Úr fórum Árna Árnasonar


Lausavísur

Eftirfarandi vísur hef ég heyrt hér í Eyjum. Höfundarnir eru mér algjörlega ókunnir og efast ég um, að þeir séu yfirleitt þekktir. Ekki er kveðskapur þessi listrænn, en úr Eyjum mun hann vera og því tekinn hér.

Helgi missti háf undir borði
hann var gildur mánaðarforði.
Kættist lítið Kristín í Gerði
kallar slíkt ei ábataferðir.
Það er grey og svívirt svei,
svaraði pey-i skjalda.
Eg vil fleyi að Elliðaey
engan vegin halda.
Eiríkur minn frá Árnagerði
upp á Vertshúsið skunda réð.
Keypti kaffi við vægu verði,
víst hef ég þetta heyrt og séð.
Sex skildinga var bollinn bert,
bæði var kaffið heitt og sterkt.
Stóra mastrið stend ég við,
storminn fast í góni.
Aflið rasar, út á hlið
öldu kastar ljóni.
Viltu í nefið vinur fá,
veit ég kvefið minnkar þá.
Mærðarstefið mitt skal tjá,
mér var gefið baukinn á.
Fúsi í Holti sendi Svein
sína að vekja drengi.
Í húsum flestum heyrðist vein,
sem hljómaði skært og lengi.
Brögnum flestum blöskraði,
hvað blundaði þundur stála.
Átján sinnum öskraði
í hann Svein á Skála.
Hollenski konsúllinn hýddur var
eina heiðskýra vetrarnótt.
Blóðugan rassinn í burtu bar
og bölvaði feikna gnótt.
Nú á haustum hörmungar
hanga í naustum fleyturnar.
Tindar traustir tigninnar,
titra í vindi skelfingar.
Ýtar brátt á ufsahlað
ýttu knör frá ströndum.
En Gísli í Kornhól gekk af stað
til að gæta að Hönnu á Löndum.
Stelur, felur, smellinn smígur,
smjaðrar, þvaðrar, alla tíð.
Klagar, jagar, kjaftar, lýgur,
kellinn, brellinn, ár og síð.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit