„Árni Einarsson (Þorvaldseyri)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Árni Einarsson''' frá Miðey í A.-Landeyjum, bóndi fæddist þar 16. nóvember 1896 og lést 26. júní 1991.<br> Foreldrar hans voru Einar Árnason frá Kirkjulæk í Fljótshlíð, bóndi, sýslunefndarmaður, átti sæti í landsdómi, f. þar 12. apríl 1858, d. 5. júlí 1922, og kona hans Helga Ísleifsdóttir frá Kanastöðum, húsfreyja, f. 10. júlí 1867, d. 28. apríl 1944. Systir Árna - í Eyjum, var<br> Sigríður Sesselja Árnadóttir saumakona, f. 26...)
 
Ekkert breytingarágrip
 
(2 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum)
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Arni Einarsson og Margret Saemundsdottir.jpg|thumb|200px|''Árni Einarsson og Margrét Sæmundsdóttir.]]
'''Árni Einarsson''' frá Miðey í A.-Landeyjum, bóndi fæddist þar 16. nóvember 1896 og lést 26. júní 1991.<br>
'''Árni Einarsson''' frá Miðey í A.-Landeyjum, bóndi fæddist þar 16. nóvember 1896 og lést 26. júní 1991.<br>
Foreldrar hans voru Einar Árnason frá Kirkjulæk í Fljótshlíð, bóndi, sýslunefndarmaður, átti sæti í landsdómi, f. þar 12. apríl 1858, d. 5. júlí 1922, og kona hans Helga Ísleifsdóttir frá Kanastöðum, húsfreyja, f. 10. júlí 1867, d. 28. apríl 1944.

Núverandi breyting frá og með 17. september 2024 kl. 19:44

Árni Einarsson og Margrét Sæmundsdóttir.

Árni Einarsson frá Miðey í A.-Landeyjum, bóndi fæddist þar 16. nóvember 1896 og lést 26. júní 1991.
Foreldrar hans voru Einar Árnason frá Kirkjulæk í Fljótshlíð, bóndi, sýslunefndarmaður, átti sæti í landsdómi, f. þar 12. apríl 1858, d. 5. júlí 1922, og kona hans Helga Ísleifsdóttir frá Kanastöðum, húsfreyja, f. 10. júlí 1867, d. 28. apríl 1944.

Systir Árna - í Eyjum, var
Sigríður Sesselja Árnadóttir saumakona, f. 26. apríl 1894, d. 29. desember 1987.
Bróðir Helgu - í Eyjum, var
Magnús Ísleifsson trésmiður í London, f. 8. ágúst 1875, d. 25. ágúst 1949.

Árni var með foreldrum sínum í æsku.
Hann átti sæti í sveitastjórn í A.-Landeyjum.
Þau Margrét giftu sig 1924, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Eyjarhólum í Mýrdal 1924-1927, en fóru þá til Eyja, bjuggu á Þorvaldseyri við Vestmannabraut 35, fluttu til lands 1928, voru bændur í Miðey í A.-Landeyjum 1928-1942 og áttu þar heima til vors 1943.
Þau fluttu til Hvolsvallar, þar sem Árni var póst- og símstöðvarstjóri 1943-1966 og Margrét vann við skiptiborðið.
Margrét lést 1977 og Árni 1991.

I. Kona Árna, (1. júní 1924), var Margrét Sæmundsdóttir frá Lágafelli í A.-Landeyjum, húsfreyja, talsímakona, f. 23. febrúar 1903, d. 6. júlí 1977.
Börn þeirra:
1. Einar Árnason rafvirkjameistari á Hvolsvelli, verkstjóri, framkvæmdastjóri, f. 18. mars 1925, d. 22. mars 2011. Kona hans Hulda Sigurlásdóttir.
2. Guðrún Árnadóttir símstöðvarstjóri á Hellu, Rang., f. 16. júlí 1927, d. 1. júlí 2015. Maður hennar Jónas Helgason.
3. Helga Maggý Árnadóttir húsfreyja í Vík í Mýrdal, síðar í Rvk, f. 20. febrúar 1930. Maður hennar Jónas Gunnarsson.

Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 4. júlí 1991. Minning.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.