„Þorbjörg Jónsdóttir (Langholti)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Þorbjörg Jónsdóttir''' verkakona, gamalmenni fæddist 7. ágúst 1866 í Hvammi í Norðurárdal í Mýrasýslu.<br> Foreldrar hennar voru Jón Helgason frá Lundi í Þverárhlíð, Mýr., bóndi, f. 14. júlí 1832, d. 1. nóvember 1906, og kona hans Þorlaug Jónsdóttir húsfreyja, f. 13. mars 1838, d. 3. október 1913. Þorbjörg var með foreldrum sínum í Króki í Mýr. 1870 og 1880, sveitarómagi í Króki 1890, sveitarstúlka á Gestsstöðum þar 1901, ni...)
 
m (Verndaði „Þorbjörg Jónsdóttir (Langholti)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 3. desember 2023 kl. 17:49

Þorbjörg Jónsdóttir verkakona, gamalmenni fæddist 7. ágúst 1866 í Hvammi í Norðurárdal í Mýrasýslu.
Foreldrar hennar voru Jón Helgason frá Lundi í Þverárhlíð, Mýr., bóndi, f. 14. júlí 1832, d. 1. nóvember 1906, og kona hans Þorlaug Jónsdóttir húsfreyja, f. 13. mars 1838, d. 3. október 1913.

Þorbjörg var með foreldrum sínum í Króki í Mýr. 1870 og 1880, sveitarómagi í Króki 1890, sveitarstúlka á Gestsstöðum þar 1901, niðursetningur í Fornahvammi í Mýr. 1910, síðar verkakona í Rvk, ógift. Hún flutti til Eyja 1928, var gamalmenni í Langholti við Vestmannabraut 48a 1930 og í Björk við Vestmannabraut 47 1934, í báðum stöðum hjá Ásgrími Eyþórssyni og Soffíu Þórðardóttur. Hún finnst ekki 1940.
Dánardægur er óþekkt.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.