„Auður Steingrímsdóttir“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: thumb|200px|''Auður Steingrímsdóttir. '''Auður Steingrímsdóttir''' sjúkraliði, húsfreyja fæddist 19. september 1956 í Reykjavík.<br> Foreldrar hennar voru Steingrímur Elíasson frá Oddhóli á Rangárvöllum sjómaður, f. 7. maí 1920, d. 5. maí 1996, og kona hans Hulda Bogadóttir Thorarensen frá Vestri-Kirkjubæ á Rangárvöllum, húsfreyja, f. 11. desember 1922, d. 16. desember 2005. Föðurbróðir Auðar var Bjarnhé...) |
m (Verndaði „Auður Steingrímsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 14. ágúst 2023 kl. 14:49
Auður Steingrímsdóttir sjúkraliði, húsfreyja fæddist 19. september 1956 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Steingrímur Elíasson frá Oddhóli á Rangárvöllum sjómaður, f. 7. maí 1920, d. 5. maí 1996, og kona hans Hulda Bogadóttir Thorarensen frá Vestri-Kirkjubæ á Rangárvöllum, húsfreyja, f. 11. desember 1922, d. 16. desember 2005.
Föðurbróðir Auðar var Bjarnhéðinn Elíasson sjómaður, skipstjóri, f. 27. ágúst 1921, d. 8. október 1992.
Auður lauk sjúkraliðaprófi á Landakotsspítala 1976.
Hún var sjúkraliði á Landakoti 1976-1977, á Grensásdeild 1981-1982, á Sjúkrahúsinu í Eyjum 1983-1992 og á Landakoti frá 1992-1998, á Landspítalanum 1998-2010.
Þau Aðalsteinn giftu sig, eignuðust þrjú börn.
I. Maður Auðar, (25. maí 1984), er Aðalsteinn Jakobsson sjómaður, f. 30. desember 1944.
Börn þeirra:
1. Eggert Þór Aðalsteinsson sagnfræðingur, bankastarfsmaður, f. 5. mars 1976 í Reykjavík. Fyrrum kona hans Erla Hlín Helgadóttir. Sambúðarkona hans Jóhanna Magnúsdóttir.
2. Steingrímur Aðalsteinsson flugmaður, f. 23. september 1977 í Reykjavík. Kona hans Gyða Bergs.
3. Anton Aðalsteinsson smiður, f. 21. nóvember 1986 í Eyjum. Sambúðarkona hans Eva Georgs og Ásudóttir.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Aðalsteinn og Auður.
- Íslendingabók.
- Sjúkraliðar á Íslandi 1966-1996. Ritstjóri: Sigurður Hermundarson. Mál og mynd 1997.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.