„Unnur Jóhannsdóttir (Fagurlyst)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Unnur Jóhannsdóttir''' frá Fagurlyst við Urðaveg 16, námsmaður fæddist 27. júní 1911 í Borgarnesi og lést 4. nóvember 1931 í Þýskalandi. Foreldrar hennar voru Jóhann Þ. Jósefsson, kaupmaður, útgerðarmaður, ræðismaður, alþingismaður og ráðherra, f. 17. júní 1886, d. 15. maí 1961, og barnsmóðir hans Ingveldur Jónsdóttir frá Hofakri í Hvammssveit, Dal., þá lausakona í Borgarnesi, f. 11. október 1890, d. 27. apríl 191...)
 
m (Verndaði „Unnur Jóhannsdóttir (Fagurlyst)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 8. febrúar 2023 kl. 10:45

Unnur Jóhannsdóttir frá Fagurlyst við Urðaveg 16, námsmaður fæddist 27. júní 1911 í Borgarnesi og lést 4. nóvember 1931 í Þýskalandi. Foreldrar hennar voru Jóhann Þ. Jósefsson, kaupmaður, útgerðarmaður, ræðismaður, alþingismaður og ráðherra, f. 17. júní 1886, d. 15. maí 1961, og barnsmóðir hans Ingveldur Jónsdóttir frá Hofakri í Hvammssveit, Dal., þá lausakona í Borgarnesi, f. 11. október 1890, d. 27. apríl 1913.

Unnur var með móður sinni í Þorkelshúsi II (Þorkelssteini) í Borgarnesi 1911, var tökubarn í Arnbjarnarhúsi þar 1912, kom til Jóhanns föður síns í Fagurlyst 1913, skráð tökubarn, og ólst upp með honum og síðar honum og konu hans Magneu. Hún fór að heiman 1929.
Unnur fór til náms í Þýskalandi, veiktist þar og lést af heilablæðingu 1931.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.