„Carl Jóhann Gränz“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:Carl Jóhann Gränz.jpg|thumb|200px|''Carl Jóhann Gränz.]] | [[Mynd:Carl Jóhann Gränz.jpg|thumb|200px|''Carl Jóhann Gränz.]] | ||
'''Carl Jóhann Gränz''' málarameistari, trésmíðameistari fæddist 22. júlí 1887 í Reykjavík og lést 14. nóvember 1967.
| '''Carl Jóhann Gränz''' málarameistari, trésmíðameistari fæddist 22. júlí 1887 í Reykjavík og lést 14. nóvember 1967.

Foreldrar hans voru Olaf Gränz klæðskeri, sænskrar ættar, og Anna Sigríður Guðmundsdóttir, | Foreldrar hans voru Olaf Gränz klæðskeri, sænskrar ættar, og Anna Sigríður Guðmundsdóttir frá Stóra-kambi í Breiðuvík, saumakona, húsfreyja á Laugavegi 50 í Reykjavík, f. 2. des. 1853, d. 13. júní 1913.

Carl var með móður sinni og Samúel manni hennar á Laugavegi 50 1901.
| Carl var með móður sinni og Samúel manni hennar á Laugavegi 50 1901.

Hann lærði trésmíði hjá Guðmundi Jakobssyni í Reykjavík og lauk prófi frá Iðnskólanum þar, fékk meistararéttindi í iðninni 1930.
| Hann lærði trésmíði hjá Guðmundi Jakobssyni í Reykjavík og lauk prófi frá Iðnskólanum þar, fékk meistararéttindi í iðninni 1930.

Hann fluttist til Eyja 1907, var leigjandi í [[Hlíð]] 1910, í [[Dalur|Dal]] við gifting 1911, leigjandi á [[Lögberg]]i 1914 og 1916, á [[Hraun]]i 1920. Hann byggði húsið [[Karlsberg|Karlsberg við Heimagötu 20]], var kaupmaður þar með Guðrúnu Ólafsdóttur 1927 og 1930, síðan á [[Haukaberg]]i og síðast í [[Veggur|Vegg]].
| Hann fluttist til Eyja 1907, var leigjandi í [[Hlíð]] 1910, í [[Dalur|Dal]] við gifting 1911, leigjandi á [[Lögberg]]i 1914 og 1916, á [[Hraun]]i 1920. Hann byggði húsið [[Karlsberg|Karlsberg við Heimagötu 20]], var kaupmaður þar með Guðrúnu Ólafsdóttur 1927 og 1930, síðan á [[Múli|Múla]], [[Haukaberg]]i og síðast í [[Veggur|Vegg]].

Carl stundaði trésmíðar, en lærði jafnframt málaraiðn og fékk réttindi, meistarabréf 4. mars 1943.
| Carl stundaði trésmíðar, en lærði jafnframt málaraiðn og fékk réttindi, meistarabréf 4. mars 1943.

Hann lagði gjörva hönd á margt, byggði hús, stofnaði húsgagnavinnustofu og verslun 1929 og rak hana í allmörg ár.
| Hann lagði gjörva hönd á margt, byggði hús, stofnaði húsgagnavinnustofu og verslun 1929 og rak hana í allmörg ár.

Núverandi breyting frá og með 26. júlí 2022 kl. 13:24
Carl Jóhann Gränz málarameistari, trésmíðameistari fæddist 22. júlí 1887 í Reykjavík og lést 14. nóvember 1967.
Foreldrar hans voru Olaf Gränz klæðskeri, sænskrar ættar, og Anna Sigríður Guðmundsdóttir frá Stóra-kambi í Breiðuvík, saumakona, húsfreyja á Laugavegi 50 í Reykjavík, f. 2. des. 1853, d. 13. júní 1913.
Carl var með móður sinni og Samúel manni hennar á Laugavegi 50 1901.
Hann lærði trésmíði hjá Guðmundi Jakobssyni í Reykjavík og lauk prófi frá Iðnskólanum þar, fékk meistararéttindi í iðninni 1930.
Hann fluttist til Eyja 1907, var leigjandi í Hlíð 1910, í Dal við gifting 1911, leigjandi á Lögbergi 1914 og 1916, á Hrauni 1920. Hann byggði húsið Karlsberg við Heimagötu 20, var kaupmaður þar með Guðrúnu Ólafsdóttur 1927 og 1930, síðan á Múla, Haukabergi og síðast í Vegg.
Carl stundaði trésmíðar, en lærði jafnframt málaraiðn og fékk réttindi, meistarabréf 4. mars 1943.
Hann lagði gjörva hönd á margt, byggði hús, stofnaði húsgagnavinnustofu og verslun 1929 og rak hana í allmörg ár.
Hann fluttist til Selfoss 1942, starfaði þar við málaraiðn hjá Kaupfélagi Árnesinga og kenndi lærlingum.
Þau Þórfinna giftu sig 1911, en skildu. Þau bjuggu í fyrstu í Dal og þar fæddist Ólafur Adólf 1912.
Carl eignaðist barn með Sigurlínu 1920.
Hann kvæntist Guðrúnu Sigríði 1924, eignaðist með henni þrjú börn í Eyjum.
I. Kona Carls Jóhanns, (19. nóvember 1911, skildu), var Þórfinna Finnsdóttir, f. 28. maí 1891, d. 15. nóvember 1976.
Barn þeirra:
1. Ólafur Adólf Gränz húsgagnasmíðameistari, leikari, kennari, listamaður, leiguílstjóri, f. 4. mars 1912 í Dal, d. 14. ágúst 1960.
II. Barnsmóðir Carls var Sigurlína Sigurðardóttir frá Rauðafelli u. Eyjafjöllum, vinnukona, f. 4. desember 1892, d. 8. október 1960.
Barn þeirra:
2. Sigríður Jakobína Gränz, f. 18. október 1920 á Rauðafelli, d. 30. júlí 1924.
III. Kona Carls, (10. september 1924 í Reykjavík), var Guðrún Sigríður Ólafsdóttir frá Vestri-Torfastöðum í Fljótshlíð, húsfreyja, f. 10. september 1897, d. 2. janúar 1957.
Börn þeirra:
3. Áki Guðni Gränz, málarameistari, listamaður, f. 26. júní 1925 á Karlsbergi, d. 4. febrúar 2014.
4. Herbert Gränz málarameistari á Selfossi, f. 12. apríl 1930 á Karlsbergi, Heimagötu 20, d. 3. febrúar 2011.
5. Gunnar Carl Gränz málarameistari, myndlistarmaður á Selfossi, f. 30. nóvember 1932 á Karlsbergi.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Íslenskir málarar - Saga og málaratal. Kristján Guðlaugsson. Málarameistarafélag Reykjavíkur 1982.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.