„Guðmundur Þorsteinsson (Eskihlíð)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Guðmundur Þorsteinsson''' frá Eystri-Sólheimum í Mýrdal, verkamaður fæddist þar 29. júlí 1894 og lést 13. júní 1984.
Foreldrar hans voru Þorsteinn Guðmundsson f...) |
Ekkert breytingarágrip |

(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum) | |||
Lína 9: | Lína 9: | ||
Sigurbjörg lést 1981 og Guðmundur 1984. | Sigurbjörg lést 1981 og Guðmundur 1984. | ||
I. Kona Guðmundar, (15. janúar 1938), var [[Sigurbjörg Jónsdóttir (Eskihlíð)|Sigurbjörg Jónsdóttir]] frá Miðbæli u. Eyjafjöllum, húsfreyja, f. 9. mars 1908 á Rauðsbakka þar, síðast í Lambhaga 20 á Selfossi, d. 4. nóvember 1981.

Börn þeirra:
| Börn þeirra:

1. Andvana stúlka, f. 27. ágúst 1939 í Eskihlíð.
| 1. Andvana stúlka, f. 27. ágúst 1939 í Eskihlíð.

Núverandi breyting frá og með 11. febrúar 2022 kl. 10:05
Guðmundur Þorsteinsson frá Eystri-Sólheimum í Mýrdal, verkamaður fæddist þar 29. júlí 1894 og lést 13. júní 1984.
Foreldrar hans voru Þorsteinn Guðmundsson frá Litlu-Hólum í Mýrdal, vinnumaður víða í Mýrdal og í Drangshlíð u. Eyjafjöllum, f. 16. apríl 1849, d. 3. október 1923, og Sigríður Jónsdóttir frá Giljum í Mýrdal, vinnukona víða í Mýrdal og í Drangshlíð, f. 18. júní 1858, d. 17. apríl 1950 í Steinum u. Eyjafjöllum.
Guðmundur var með foreldrum sínum á Eystri-Sólheimum til 1897, á Felli í Mýrdal 1897-1898, í Sólheimakoti þar 1898-1901, í Pétursey 1901-1903, í Sólheimakoti 1903-1905. Þá fór hann með þeim að Drangshlíð, var vinnumaður í Ytri-Skógum 1910, á Hrútafelli 1920.
Hann fluttist til Eyja á síðari hluta fjórða áratugar tuttugustu aldarinnar, bjó á Goðafelli, Hvítingavegi 3 við giftingu 1938, en í Eskihlíð á Skólavegi 36 við fæðingu tveggja barna sinna 1939 og 1940.
Þau Sigurbjörg bjuggu á Urðavegi 41, Eiríkshúsi við fæðingu Þráins 1943 og 1945, í Pétursborg, Vestmannabraut 56b 1949.
Þau byggðu Landagötu 14 1949 og bjuggu þar síðan meðan vært var.
Hjónin fluttust til Selfoss við Gos, bjuggu þar í Lambhaga 20.
Sigurbjörg lést 1981 og Guðmundur 1984.
I. Kona Guðmundar, (15. janúar 1938), var Sigurbjörg Jónsdóttir frá Miðbæli u. Eyjafjöllum, húsfreyja, f. 9. mars 1908 á Rauðsbakka þar, síðast í Lambhaga 20 á Selfossi, d. 4. nóvember 1981.
Börn þeirra:
1. Andvana stúlka, f. 27. ágúst 1939 í Eskihlíð.
2. Drengur, f. 28. nóvember 1940 í Eskihlíð, d. sama dag.
3. Þráinn Guðmundsson trésmiður á Selfossi, f. 24. júní 1943 á Urðavegi 41.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
- Íslendingabók.is.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.