„Sesselja Ingimundardóttir (Gjábakka)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Sesselja Ingimundardóttir''' frá Gjábakka, húsfreyja á Stóra Gjábakka fæddist 16. september 1874 og lést 1. apríl 1949.<br> Foreldrar ...) |
m (Verndaði „Sesselja Ingimundardóttir (Gjábakka)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 18. febrúar 2016 kl. 15:56
Sesselja Ingimundardóttir frá Gjábakka, húsfreyja á
Stóra Gjábakka fæddist 16. september 1874 og lést 1. apríl 1949.
Foreldrar hennar voru Ingimundur Jónsson útvegsbóndi, formaður og hreppstjóri á Gjábakka og kona hans Margrét Jónsdóttir.
Sjá ættboga hennar í Eyjum á síðu Fríðar Ingimundardóttur systur hennar.
Sesselja var með foreldrum sínum á Gjábakka og var leigjandi með Jóni manni sínum hjá þeim 1901.
Þau Jón giftu sig 1898 og bjuggu hjá foreldrum hennar í fyrstu, en reistu Stóra Gjábakka, (Bakkastíg 8) 1909 og bjuggu þar síðan.
Jón lést 1936 og Sesselja 1949.
Maður Sesselju, (11. nóvember 1898), var Jón Einarsson framkvæmdastjóri, útgerðarmaður, kaupmaður frá Ysta-Skála u. Eyjafjöllum, f. 8. apríl 1867, d. 19. desember 1936.
Þau voru barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.