„Jón Sigmundsson (Landlyst)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Jón Sigmundsson''' frá Reyni í Mýrdal, síðar bóndi og smiður í Utah fæddist 1. ágúst 1858 á Reyni og lést 4. júní 1908 í Spanish Fork í Utah.
Foreldrar hans v...) |
Ekkert breytingarágrip |

(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum) | |||
Lína 3: | Lína 3: | ||
Mágkonur Jóns voru:
| Mágkonur Jóns voru:

1. [[Elín Guðnadóttir (Heiði)|Elín Guðnadóttir]] vinnukona á Heiði, f. 24. júní 1856, d. 18. júní1923.
| 1. [[Elín Guðnadóttir (Heiði)|Elín Guðnadóttir]] vinnukona á [[Heiði]], f. 24. júní 1856, d. 18. júní1923.

2. [[Guðrún Guðnadóttir (Nýborg)|Guðrún Guðnadóttir]] vinnukona í [[Nýborg]], f. 24. júní 1856, d. 1. nóvember 1926.
| 2. [[Guðrún Guðnadóttir (Nýborg)|Guðrún Guðnadóttir]] vinnukona í [[Nýborg]], f. 24. júní 1856, d. 1. nóvember 1926.

og mágur:
| og mágur:

Núverandi breyting frá og með 11. janúar 2016 kl. 20:43
Jón Sigmundsson frá Reyni í Mýrdal, síðar bóndi og smiður í Utah fæddist 1. ágúst 1858 á Reyni og lést 4. júní 1908 í Spanish Fork í Utah.
Foreldrar hans voru Sigmundur Eyjólfsson bóndi á Reyni, f. 20. maí 1810 í Pétursey í Mýrdal, d. 22. ágúst 1891 í Kerlingardal þar, og kona hans Guðrún Björnsdóttir húsfreyja, f. 24. mars 1814 í Bakkagerði í Meðallandi, d. 31. júlí 1866 á Reyni.
Mágkonur Jóns voru:
1. Elín Guðnadóttir vinnukona á Heiði, f. 24. júní 1856, d. 18. júní1923.
2. Guðrún Guðnadóttir vinnukona í Nýborg, f. 24. júní 1856, d. 1. nóvember 1926.
og mágur:
3. Ísleifur Guðnason bóndi á Kirkjubæ, f. 30. janúar 1862, d. 1. júní 1916.
Jón var með foreldrum sínum til ársins 1869, var tökupiltur í Reynishólum í Mýrdal 1869-1870, vinnupiltur í Holti þar 1870-1872, í Skammadal þar 1872-1873.
Hann fluttist úr Mýrdal að Frydendal 1879, var þar vinnumaður 1880-1881, í Landlyst 1882-1884. Hann fór til Seyðisfjarðar 1885, kom aftur að Landlyst 1887 og var þar til 1891, er hann fluttist til Vesturheims með Guðnýju vinnukonu í Landlyst.
Jón fluttist til Utah 1891, var þar smiður og bóndi.
Hann vann við járnbrautirnar, þegar hann dó af slysförum 1908.
Kona hans var Guðný Guðnadóttir vinnukona frá Hallgeirseyjarhjáleigu í A-Landeyjum, f. 14. júlí 1858, d. 26. maí 1939.
Fjórir synir þeirra bjuggu í Spanish Fork 1908.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Saga Íslendinga í Vesturheimi I-V. Þorsteinn Þ. Þorsteinsson, Tryggvi J. Oleson. Winnipeg: Þjóðræknisfélag Íslendinga í Vesturheimi: Menningarsjóður 1940-1953.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.