Elín Guðnadóttir (Heiði)
Elín Guðnadóttir vinnukona á Heiði fæddist 24. júní 1856 í Hallgeirseyjarhjáleigu í A-Landeyjum og lést 18. júní 1923.
Faðir Elínar var Guðni bóndi þar, f. 4. desember 1813 á Arnarhóli í V-Landeyjum, d. 23. desember 1872, Guðnason bónda á Arnarhóli og Hallgeirseyjarhjáleigu, f. 1778 á Núpum í Fljótshverfi, V-Skaft., d. 6. janúar 1850 á Arnarhóli, Ögmundssonar bónda á Núpum, f. 1726, d. 19. september 1780, Ólafssonar, og síðari konu Ögmundar, Guðrúnar húsfreyju, f. 1748, d. 28. júlí 1818, Þorsteinsdóttur bónda á Arnbjargarlæk í Þverárhlíð, Borgarfirði, Þorvaldssonar.
Móðir Guðna yngri í Hallgeirseyjarhjáleigu og kona, (19. júlí 1804), Guðna eldri var Kristín húsfreyja, skírð 6. apríl 1778, d. 28. september 1854, Bjarnhéðinsdóttir bónda í Langagerði í Hvolhreppi, f. 1743, d. 8. ágúst 1811, Sæmundssonar, og konu Bjarnhéðins, Guðrúnar húsfreyju, f. 1751, d. 11. febrúar 1834, Einarsdóttur.
Móðir Elínar og kona Guðna í Hallgeirseyjarhjáleigu, (1. júlí 1852), var Elín húsfreyja, f. 18. júní 1826 í Efri-Vatnahjáleigu (Svanavatni) í A-Landeyjum, d. 23. nóvember 1908, Ísleifsdóttir bónda á Bryggjum þar, f. 27. febrúar 1799 í Búðarhóls-Norðurhjáleigu þar, d. 20. mars 1893 í Hallgeirseyjarhjáleigu, Eyjólfssonar bónda í Búðarhóls-Austurhjáleigu (Hólavatni) þar, f. 1768 í Norður-Búðarhólshjáleigu þar, d. 26. nóvember 1838 í Austurhjáleigu þar, Guðmundssonar, og konu Eyjólfs, (15. ágúst 1790), Elínar húsfreyju og yfirsetukonu, f. 1767 í Bakkahjáleigu í A-Landeyjum, d. 7. maí 1855, Ísleifsdóttur.
Móðir Elínar í Hallgeirseyjarhjáleigu og kona, (6. júní 1824, skildu), Ísleifs á Bryggjum var Guðný húsfreyja á Bryggjum, f. 11. október 1805, d. 23. september 1877, Jónsdóttir bónda á Syðri-Úlfsstöðum, Ljótarstöðum og Snotru í A-Landeyjum, f. 1766 á Syðri-Úlfsstöðum, d. 2. apríl 1842 á Snotru, Þorkelssonar, og konu Jóns Þorkelssonar, (28. október 1790), Margrétar húsfreyju, f. 1765, d. 18. júlí 1834, Hreinsdóttur.
Systkini Elínar í Eyjum voru:
1. Guðrún Guðnadóttir vinnukona í Nýborg, síðar í Utah, f. 24. júní 1856, d. 1. nóvember 1926. Hún var tvíburi við Elínu.
2. Guðný Guðnadóttir vinnukona, síðar í Utah, f. 14. júlí 1858, d. 26. maí 1939.
3. Ísleifur Guðnason bóndi á Kirkjubæ, f. 30. janúar 1862, d. 1. júní 1916.
Elín var með foreldrum sínum í æsku, var vinnukona á Uppsölum í Hvolhreppi 1880, í Vatnsdal í Fljótshlíð 1890.
Hún fluttist frá Vatnsdal til Eyja 1901, var vinnukona hjá Ísleifi bróður sínum á Kirkjubæ 1901, á Heiði hjá Sigurði Sigurfinnssyni og Guðríði Jónsdóttur 1906 og enn 1915, hjá ekkjunni Guðríði 1916 og 1917, Guðjóni Jónssyni og Guðríði 1918 til dd.
Elín lést 1923.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.