„Guðrún Eiríksdóttir (Vanangri)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Guðrún Eiríksdóttir''' frá Vanangri fæddist 6. ágúst 1857 í Holtssókn u. Eyjafjöllum.<br> Foreldrar hennar voru Eiríkur Sighvatsson vinnumaður, sjómaður...) |
m (Verndaði „Guðrún Eiríksdóttir (Vanangri)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 27. ágúst 2015 kl. 18:17
Guðrún Eiríksdóttir frá Vanangri fæddist 6. ágúst 1857 í Holtssókn u. Eyjafjöllum.
Foreldrar hennar voru Eiríkur Sighvatsson vinnumaður, sjómaður, f. 1832, drukknaði 30. mars 1859, og kona hans Guðný Oddsdóttir, þá á Moldnúpi, f. 2. nóvember 1829, d. 1. september 1861.
Guðrún missti föður sinn, er hún var á 2. ári. Hún fluttist til Eyja með móður sinni 1860 og bjuggu þær í Vanangri þar sem móðirin var bústýra.
Guðný móðir hennar dó á sóttarsæng 1861 og Guðrún var flutt sveitarflutningi „til Eyjafjallahrepps“.
Hún var tökubarn hjá föðurforeldrum sínum í Skálakoti 1870, vinnukona á Hrútafelli 1880.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.