„Ritverk Árna Árnasonar/Sigurður Jóelsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''''<big>Kynning.</big>''''' '''Sigurður Ingi Jóelsson''' formaður frá Sælundi fæddist 1. ágúst 1917 og lést 29. apríl 1991.<br> Foreldrar hans voru [[Jóel...)
 
Ekkert breytingarágrip
 
(2 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum)
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Sigurður Jóelsson.jpg|thumb|250px|''Sigurður Jóelsson.]]
'''''<big>Kynning.</big>'''''
'''''<big>Kynning.</big>'''''


Lína 20: Lína 21:
*Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara frá [[Grund]]. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
*Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara frá [[Grund]]. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
*Heimaslóð.}}
*Heimaslóð.}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}

Núverandi breyting frá og með 22. ágúst 2015 kl. 20:32

Sigurður Jóelsson.

Kynning.

Sigurður Ingi Jóelsson formaður frá Sælundi fæddist 1. ágúst 1917 og lést 29. apríl 1991.
Foreldrar hans voru Jóel Eyjólfsson útvegsmaður og formaður f. 3. nóvember 1878, d. 28. desember 1944, og síðari kona hans Oktavía Einarsdóttir húsfreyja á Sælundi, f. 22. október 1880, d. 31. desember 1929.

Kona Sigurðar Jóelssonar var Fanney Ármannsdóttir húsfreyja, f. 20. júlí 1922, d. 27. ágúst 2003.
Þau Fanney áttu ekki börn saman, en ólu upp frænda sinn
Jóel Eyjólfsson Gunnarsson, f. 7. janúar 1954. Hann er kvæntur Ingu Steinunni Ágústsdóttur Hreggviðssonar , f. 21. apríl 1958.
Móðir Jóels er Þórdís Guðmundsdóttir Jóelssonar, síðar húsfreyja í Norðurbænum á Kirkjubæ, gift Magnúsi Péturssyni Guðjónssonar bónda.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Sigurður er hár maður og þrekinn, en samsvarar sér mjög vel, svarthærður, en ljós í andliti og fríður vel. Hann er sterkur maður, snar og mjög liðugur í öllum hreyfingum. Hann virkar á mannamótum sem daufur í framkomu, en er mjög skapléttur og skemmtilegur í viðræðum í sínum hóp, þ.e.a.s. hann er heldur hlédrægur.
Veiðimaður er Sigurður prýðisgóður og bjarggöngumaður svo góður að með fádæmum er, öruggur og fljótur, en gætinn. Hann hefir sigið mikið í flestum úteyjum og þykir öllum mikils um vert leikni hans og dugnað.
Lífsstarf Sigurðar er sjómennska, er formaður á vélbátum, heppinn og dugandi, fengsæll og vel látinn af öllum.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Sigurður Jóelsson


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.