„Jón Árnason (Nýjabæ)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Jón Árnason''' bóndi og sjómaður í Nýjabæ fæddist 1807 í Kerlingardal í Mýrdal og lést 1. september 1846 í Nýjabæ.<br> Foreldrar hans voru Árni bó...)
 
Ekkert breytingarágrip
 
Lína 13: Lína 13:
*Manntöl.
*Manntöl.
*Prestþjónustubækur.
*Prestþjónustubækur.
*Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn  
*Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.}}
Magnússon. Leiftur 1970-1973.}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Bændur]]
[[Flokkur: Bændur]]

Núverandi breyting frá og með 18. ágúst 2015 kl. 21:08

Jón Árnason bóndi og sjómaður í Nýjabæ fæddist 1807 í Kerlingardal í Mýrdal og lést 1. september 1846 í Nýjabæ.

Foreldrar hans voru Árni bóndi í Kerlingardal, f. 1764, d. 11. marz 1836, Klemensson, Hallgrímssonar og konu Klemensar, Vilborgar Runólfsdóttur. Móðir Jóns og kona Árna var Helga húsfreyja, f. 1779, Þorsteins bónda, síðast í Kerlingardal, Steingrímssonar og konu Þorsteins, Guðríðar Bjarnadóttur, Nikulássonar.

Jón var með foreldrum sínum í bernsku, var vinnumaður á Hellum í Mýrdal til 1834. Þá fluttist hann að Nýjabæ, var þar sjómaður og bóndi.
Hann var ekkill í Nýjabæ 1845 með Kristjáni stjúpsyni sínum.

I. Kona Jóns, (29 september 1835), var Kristín Ögmundsdóttir, þá ekkja í Nýjabæ, f. 1789, d. 6. júní 1842.
Við giftingu var Kristín 47 ára, en Jón 28 ára.
Þau Jón voru barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.