Hanna M. Þórðardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. júní 2024 kl. 17:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. júní 2024 kl. 17:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Hanna Margrét Þórðardóttir''' húsfreyja, bankastarfsmaður, bæjarstarfsmaður fæddist 24. maí 1955.<br> Foreldrar hennar Þórður Magnússon frá Skansinum, verktaki, bifreiðastjóri, f. 17. apríl 1933, d. 9. mars 2021, og kona hans Hrönn Vilborg Hannesdóttir frá Hæli, húsfreyja, f. 22. febrúar 1939. Börn Vilborgar og Þórðar:<br> 1. Hanna M. Þórðardóttir...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hanna Margrét Þórðardóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, bæjarstarfsmaður fæddist 24. maí 1955.
Foreldrar hennar Þórður Magnússon frá Skansinum, verktaki, bifreiðastjóri, f. 17. apríl 1933, d. 9. mars 2021, og kona hans Hrönn Vilborg Hannesdóttir frá Hæli, húsfreyja, f. 22. febrúar 1939.

Börn Vilborgar og Þórðar:
1. Hanna Margrét Þórðardóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 24. maí 1955. Maður hennar er Óskar Valtýsson.
2. Ósk Þórðardóttir húsfreyja, tannlæknir í Reykjavík, f. 27. júní 1957 í Sætúni. Maður hennar er Kristinn Leifsson.
3. Guðbjörg Þórðardóttir húsfreyja, skrifstofumaður í Garðabæ, f. 5. mars 1964. Maður hennar var Viðar Einarsson.
4. Elín Þórðardóttir húsfreyja, skrifstofumaður í Kópavogi, f. 4. júní 1970. Sambýlismaður var Ísólfur Ásmundsson.

Hanna lauk landsprófi 1970, verslunarprófi í Framhaldsskólanum.
Hún vann við fiskiðnað í eitt ár eftir landspróf, síðar var hún starfsmaður Útvegsbankans og Íslandsbanka í 32 ár, síðan starfsmaður Bæjarins til starfsloka.
Þau Óskar Valtýsson giftu sig 1974, eignuðust tvö börn. Þau búa við Bröttugötu 37.

I. Maður Hönnu, (28. desember 1974), er Óskar Valtýsson frá Kirkjufelli, járnsmíðameistari, f. 7. mars 1951.
Börn þeirra:
1. Þórður Jacobs Óskarsson, lektor í stofnfrumulíffræði í Tampa í Flórída, f. 6. júlí 1975. Kona hans Danielle Janice Jakobs-Óskarsson.
2. Ásgeir Óskarsson, vélfræðingur í Noregi, f. 8. október 1981. Kona hans Gunnhildur Magnúsdóttir úr Rvk.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.