Vilborg Gísladóttir (Dverghamri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Vilborg Gísladóttir frá Hólagötu 20, húsfreyja fæddist 25. nóvember 1951.
Foreldrar hennar voru Gísli Ágústsson frá Ásnesi við Skólaveg 7, rafvirkjameistari, f. 6. maí 1926, d. 15. september 1998, og kona hans Ingibjörg Guðrún Öfjörð Pálsdóttir frá Litlu-Reykjum í Flóa, húsfreyja, f. 17. febrúar 1926, d. 26. júlí 1967.

Börn Ingibjargar og Gísla:
1. Ingveldur Gísladóttir húsfreyja, f. 22. ágúst 1949, d. 20. mars 2014. Maður hennar var Eyjólfur Þorbjörn Pétursson skipstjóri, f. 4. nóvember 1946.
2. Vilborg Gísladóttir húsfreyja, f. 15. nóvember 1951. Maður hennar Bergur M. Sigmundsson bakarameistari.

Vilborg var með foreldrum sínum.
Hún eignaðist barn með Reyni 1971.
Þau Bergur giftu sig 1972, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Dverghamar 4, síðar Áshamar 75.

I. Barnsfaðir Vilborgar var Reynir Lúthersson, f. 3. febrúar 1948, d. 30. apríl 2020.
Barn þeirra:
1. Ingibjörg Reynisdóttir, f. 22. febrúar 1971 í Hafnarfirði.

II. Maður Vilborgar, (2. desember 1972), er Bergur Magnús Sigmundsson frá Tungu við Heimagötu 4, bakarameistari, f. 5. desember 1947.
Börn þeirra:
1. Sturla Bergsson, f. 20. júní 1973.
2. Ívar Örn Bergsson, f. 8. apríl 1976.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.