Valborg Elín Kjartansdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Valborg Elín Kjartansdóttir húsfreyja í Eyjum og Reykjavík fæddist 7. október 1967 í Keflavík.
Foreldrar hennar voru Robert John Barstis frá Bandaríkjunum, f. þar 17. júlí 1941, og barnsmóðir hans Arndís Egilson, síðar húsfreyja í Eyjum, f. 3. apríl 1942 í Reykjavík, d. 14. júní 2005 í Eyjum.
Kjörfaðir Helenar er Kjartan Þór Bergsteinsson loftskeytamaður, f. 15 september 1938 í Eyjum.

I. Barn Arndísar og fyrsta manns hennar Burk W. Smith:
1. Egill Egilson, f. 30. maí 1960. Hann dvelur erlendis.
II. Börn Arndísar og annars manns hennar Francis Joseph Clifford:
2. Kathleen Valborg Clifford, f. 28. júlí 1961. Maður hennar, (skildu), var Gunnar Bogason. Síðari maður Agnar Helgason.
3. Helene Arndis Clifford (heitir nú Helen Arndís Kjartansdóttir), f. 18. október 1963. (Sjá neðar).
III. Barn Arndísar og þriðja manns hennar Francis John Barstis:
4. Valborg Elin Barstis (heitir nú Valborg Elín Kjartansdóttir, f. 7. október 1967. (Sjá neðar).
IV. Börn Arndísar og fjórða manns hennar Kjartans Þórs Begsteinssonar:
5. Arndís María Kjartansdóttir húsfreyja, kennari, fasteignasali, f. 3. júlí 1971. Maður hennar er Ómar Steinsson.
6. Kjartan Þór Kjartansson sjómaður, f. 30. janúar 1975, ókv.
7. Kolbrún Kjartansdóttir húsfreyja, f. 6. febrúar 1980. Maður hennar er Örvar Ólafsson.
Börn Arndísar og fósturbörn Kjartans Þórs:
8. Helen Arndís Kjartansdóttir húsfreyja, f. 18. október 1963. Fyrrum maður hennar Hermann Haraldsson. Maður hennar Baldur Þór Bragason, látinn.
9. Valborg Elín Kjartansdóttir húsfreyja, f. 7. október 1967. Sambýlismaður, (skildu) var Jón Trausti Haraldsson.

I. Sambúðarmaður Valborgar Elínar, skildu, var Jón Trausti Haraldsson vélvirkjameistari, f. 16. febrúar 1961 í Eyjum, d. 31. mars 2010. Foreldrar hans voru Haraldur Traustason skipstjóri, útgerðarmaður, f. 22. nóvember 1939 í Garðshorni við Heimagötu 40, d. 13. júní 1993, og kona hans Edda Tegeder húsfreyja, f. 7. apríl 1939 í Bremerhaven í Þýskalandi.
Börn þeirra:
1. Guðmundur Heinrich Jónsson rafmagnstæknifræðingur, f. 8. október 1985 í Eyjum. Kona hans er Iryna Charnykh.
2. Sindri Jónsson tryggingamiðlari, f. 29. júní 1989 í Eyjum, ókv.
3. Haraldur Trausti Jónsson verslunarmaður, f. 25. október 1993 í Eyjum, ókv.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.