Tómas Bjarki Kristinsson
Jump to navigation
Jump to search
Tómas Bjarki Kristinsson, vinnuvélastjóri fæddist 25. nóvember 1973 í Keflavík.
Foreldrar hans Kristinn Viðar Pálsson, hefilsstjóri, f. 4. nóvember 1938, og Hrefna Guðbjörg Tómasdóttir, húsfreyja, f. 28. janúar 1942.
Börn Guðbjargar og Kristins:
1. Páll Viðar Kristinsson, f. 27. febrúar 1964.
2. Elísabet Hrefna Kristinsdóttir, f. 17. janúar 1971.
3. Tómas Bjarki Kristinsson, f. 25. nóvember 1973.
Þau Arna Dís giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau skildu.
I. Fyrrum kona Tómasar Bjarka er Arna Dís Kristinsdóttir, f. 31. júlí 1972.
Barn þeirra:
1. Tómas Elí Tómasson, f. 10. maí 2013 í Eyjum.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.