Svala Hauksdóttir (Vatnsdal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Svala Guðný Vatnsdal Hauksdóttir.

Svala Guðný Vatnsdal Hauksdóttir frá Vatnsdal, húsfreyja, verslunarmaður, leiðbeinandi fæddist þar 4. ágúst 1939 og lést 11. september 2020.
Foreldrar hennar voru Haukur Högnason frá Vatnsdal, bifreiðastjóri, f. 7. júlí 1912, d. 13. apríl 1993, og kona hans Jóhanna Jósefína Jósefsdóttir frá Siglufirði, húsfreyja, f. 2. október 1912, d. 2. nóvember 1982.

Börn Jóhönnu og Hauks:
1. Svala Guðný Vatnsdal Hauksdóttir húsfreyja, leiðbeinandi í Eyjum, f. 4. ágúst 1939, d. 11. september 2020. Maður hennar Jón Ingi Hauksson.
2. Ölver Hauksson bifreiðastjóri, f. 11. september 1943, d. 25. september 2018, ókvæntur.
3. Sigurður Högni Hauksson bifvélavirki í Eyjum, f. 17. janúar 1948. Barnsmóðir hans Elísabet Bjarnason. Fyrrum kona hans Sigríður Fanney Jónsdóttir. Kona hans Margrét Brandsdóttir.
Barn Jóhönnu fyrir hjónaband, með Haraldi Óskari Kristjánssyni frá Ísafirði:
4. Pétur Jóhannesson Haraldsson vélstjóri, f. 26. júní 1933 á Siglufirði, d. 14. júlí 1978 á Ísafirði. Hann ólst upp hjá föðurforeldrum sínum á Ísafirði.

Svala var með foreldrum sínum í æsku.
Hún varð gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1956.
Hún var verslunarmaður, en var síðar hannyrðakona og leiðbeinandi í Hraunbúðum.
Þau Jón Ingi giftu sig 1968, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Kirkjubæjarbraut 15 við Gosið 1973, síðar á Haukabergi við Vestmannabraut 11.
Jón Ingi lést 2008 og Svala 2020.

I. Maður Svölu, (21. september 1968), var Jón Ingi Hauksson frá Selfossi, lögmaður, bæjarfógetafulltrúi, f. 8. maí 1943, d. 6. júlí 2008.
Börn þeirra:
1. Haukur Jónsson framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja, f. 31. janúar 1967. Fyrrum kona hans Kristbjörg Jónsdóttir. Kona hans Björg Jóhannsdóttir.
2. Bjarki Jónsson pípulagningameistari í Reykjavík, f. 5. mars 1971. Kona hans Ósk Gunnarsdóttir.
3. Jóhanna Inga Jónsdóttir matartæknir við Leikskólann á Sóla, f. 3. mars 1972. Maður hennar Hólmgeir Austfjörð.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.