Margrét Brandsdóttir (Jaðri)
Margrét Brandsdóttir frá Reykjavík, húsfreyja, leikskólakennari fæddist 13. janúar 1949.
Foreldrar hennar voru Brandur Jónsson skólastjóri Heyrnleysingjaskólans, f. 21. nóvember 1911, d. 12. september 1982, og kona hans Sigurrós Einarsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 12. apríl 1918, d. 6. mars 2002.
Margrét var með foreldrum sínum í æsku.
Hún eignaðist barn með Sigurjóni 1970.
Þau Finnur bjuggu saman, eignuðust þrjú börn, en skildu.
Þau Sigurður Högni giftu sig 1999, eignuðust ekki börn saman.
Sigurður Högni lést 2023.
Margrét dvelur í Hraunbúðum.
I. Barnsfaðir Margrétar er Sigurjón Valdimarsson, f. 11. desember 1949.
Barn þeirra:
1. Brandur Sigurjónsson, f. 31. janúar 1970.
II. Maður Margrétar, (skildu), er Finnur Sigurgeirsson, f. 18. ágúst 1949. Foreldrar hans voru Sigurgeir Kristjánsson, f. 22. júlí 1912, d. 30. janúar 1985, og Rannveig Margrét Gísladóttir, f. 6. janúar 1914, d. 4. apríl 2000.
Börn þeirra:
1. Brandur Sigurjónsson, f. 31. janúar 1970. Kona hans Edda Einarsdóttir.
2. Einar Örn Finnsson, f. 12. desember 1973. Kona hans Sylvía Oddný Einarsdóttir.
3. Bergrún Finnsdóttir, f. 2. ágúst 1979. Maður hennar Guðlaugur R. Rúnarsson.
4. Gísli Finnsson, f. 17. apríl 1984. Kona hans Vala Gunnarsdóttir.
III. Maður Margrétar var Sigurður Högni Hauksson bifvélavirkjameistari, f. 17. janúar 1948, d. 11. febrúar 2023.
Þau áttu ekki börn saman.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Sigurður Högni.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.