Stefán Sigurðsson (Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Stefán Sigurðsson, verkamaður, lagermaður fæddist 20. nóvember 1957.
Foreldrar hans Sigurður Breiðfjörð Þorbjörnsson, verkamaður, verkstjóri, f. 9. maí 1927, d. 28. janúar 2016, og kona hans Ásta Stefánsdóttir, húsfreyja, f. 27. september 1927, d. 26. maí 2022.

Börn Ástu og Sigurðar:
1. Steinunn Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. þar 14. desember 1950. Barnsfaðir hennar Robert Gallald. Maður hennar Guðni Guðmundsson.
2. Hrefna Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. þar 10. september 1953. Fyrrum sambúðarmenn hennar Eiric Ólafsson og Aðalsteinn Herbertsson. Maður hennar Guðjón Hilmar Jónsson.
3. Sigurþór Sigurðsson bókbindari í Reykjavík, f. þar 23. september 1954.
4. Stefán Sigurðsson verkamaður, lagermaður, f. þar 20. nóvember 1957. Kona hans Jóhanna Guðfinnsdóttir.
5. Guðríður Sigurðardóttir húsfreyja, verslunarmaður í Reykjavík, f. þar 20. september 1960. Maður hennar Guðmundur Óskar Hauksson.

Þau Jóhanna giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa á Akranesi.

I. Kona Stefáns er Jóhanna Guðfinnsdóttir frá Trékyllisvík á Ströndum, húsfreyja, bréfberi hjá Póstinum, f. 2. apríl 1960. Foreldrar hennar Guðfinnur Ragnar Þórólfsson, f. 4. júlí 1926, d. 1. janúar 1981, og Guðrún Ágústa Sveinbjörnsdóttir, f. 12. september 1934, d. 26. desember 2020.
Börn þeirra:
1. Ásta Ragna Stefánsdóttir, f. 9. júní 1986.
2. Sigurður Ágúst Stefánsson, f. 28. september 1989.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.