Stefán Björnsson (Heiðarvegi 5)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Stefán Björnsson verslunarmaður, sölumaður, forstöðumaður fæddist 28. október 1934.
Foreldrar hans voru Björn Ingi Stefánsson kaupfélagsstjóri, f. 10. nóvember 1908 í Kanada, d. 31. janúar 2000, og kona hans Þórunn Stefánsdóttir húsfreyja, f. 12. desember 1913, d. 1. ágúst 1999.
Stefán var forstöðumaður fyrir Vörusölu SÍS í Eyjum.
Þau Gyða giftu sig 1956, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu við Heiðarveg 5. Þau búa við Löngulínu í Garðabæ.

I. Kona Stefáns, (28. júlí 1956), er Gyða Guðbjörnsdóttir frá Rvk, húsfreyja, f. 13. september 1937.
Börn þeirra:
1. Þórunn Stefánsdóttir, f. 22. júlí 1957 í Rvk.
2. Guðmundur Stefánsson, f. 15. september 1958 í Rvk.
3. Björn Ingi Stefánsson, f. 21 apríl 1966.
4. Guðbjörg Ásta Stefánsdóttir, f. 28. apríl 1979.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.