Stefán Ólafsson (Litla-Hvammi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Stefán Ólafsson frá Litla-Hvammi, matsveinn fæddist 31. janúar 1964.
Foreldrar hans voru Ólafur Már Sigmundsson, sjómaður, vélstjóri, útgerðarmaður, trillukarl, f. 11. mars 1942, d. 11. apríl 2023, og kona hans Þórhildur Jónasdóttir, húsfreyja, f. 9. febrúar 1945.

Þau Helena hófu sambúð, eignuðust eitt barn, og Helena átti eitt barn áður. Þau búa við Höfðaveg 34.

I. Sambúðarkona Stefáns er Helena Árnadóttir, húsfreyja, f. 23. desember 1960. Foreldrar hennar Árni Hannessson, vélstjóri, stýrimaður, skipstjóri, og Laufey Hulda Sæmundsdóttir, húsfreyja, f. 29. október 1920, d. 15. september 2002. Barn þeirra:
1. Þórhildur Ósk Stefánsdóttir, f. 8. desember 1992.
Barn Helenu:
2. Sigurður Árni Tryggvason, f. 30. janúar 1984.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.