Sjómannadgsblað Vestmannaeyja 1978/ Frá höfninni

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Frá höfninni


Hér fer á eftir yfirlit yfir út- og innflutning um Vestmannaeyjahöfn árin 1976 og 1977. Yfirlit þetta er tekið saman af Sigurði Þ. Jónssyni, starfsmanni á skrifstofu Hafnarsjóðs. Allt vörumagn talið í lestum.

Hafnarvörðurinn á eftirlitsferð
Útskipun á saltsíld.
Uppskipun á tunnum




Auk þess var flutt út mikið magn af margskonar vörum á blönduðum farmskrám.


Auk þess var mjög mikið magn af vörum flutt hingað á blönduðum farmskrám. Er það ekki flokkað né gefinn upp samanlagður þungi í skýrslu þessari. Þess ber og að geta, að flutningar með m/s Herjólfi er ekki talinn með á þessum skrám um út-og innflutning.

Flutningar með m/s Herjólfi 1976: M/s Herjólfur lagðist að bryggju í Vestmannaeyjum nýsmíðaður sunnudaginn 4. júlí 1976. Fór hann fyrstu ferðina til Þorlákshafnar miðvikudaginn 7. júlí. Þá var aðstaða við afgreiðslu skipsins í Þorlákshöfn ekki tilbúin. Flutningar með skipinu frá 7. júlí 1976 til 6. júlí 1977 urðu sem hér segir:


1977: M/s Herjólfur fór 272 ferðir til Þorláks-hafnar á árinu 1977. Að meðaltali voru 125 farþegar í ferð, 25 bifreiðar og kojunýting varð 40. Flutningar með skipinu urðu annars sem hér segir:


Fram til áramóta 1977-1978 önnuðust Vinnutæki h.f. alla flutninga milli Reykjavíkur og Þorlákshafnar og vörumóttöku í Reykjavík. Sú breyting er nú á orðin, að Herjólfur hf. annast nú sjálft þessa flutninga, og er vörumóttaka á sama stað og áður, þ.e. að Vatnagörðum 6, (Matkaups-húsinu) í Reykjavík. Nýr verkstjóri í vöruafgreiðslu hefur verið ráðinn. Er það Friðþjófur Másson frá Valhöll.


Tillaga að framtíðarskipulagi hafnarsvæðisins
Skipalyftan komin heim
M/s Herjólfur