Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1984/ Vertíðin 1984

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Vertíðin 1984



JANÚAR byrjaði á miklu kvótaspjalli manna á meðal og sýndist sitt hverjum, en kvóti varð staðreynd. Heildarafli í mánuðinum 1867,4 tonn í 175 löndunum.
Netabátar
Netabátar byrjuðu veiðar og fengu mjög góðan afla, 630 tonn í 35 róðrum eða 18 tonn í róðri að meðaltali, mest bar á aflamanninum Sveini Valdimarssyni og áhöfn hans á Valdimari Sveinssyni VE 22, sem öfluðu 303 tonn í 9 róðrum. Agætis afli varð einnig hjá Ófeig III., Suðurey og Glófaxa. Mest allur aflinn var ufsi.
Botnvarpa
7 bátar byrjuðu í mánuðinum. Heldur lélegur afli, 89,5 tonn í 20 róðrum eða 4,5 tonn í róðri. Sigurfari VE 138 var með mestan afla, 27 tonn í 3 róðrum.
Lína
19 bátar og trillur öfluðu 236,4 tonn. Ágætis afli og mest bar á Guðna á Gjafari VE 600 og áhöfn hans sem öfluðu 87,5 tonn í 12 róðrum. Góður afli á línu í janúar.
Togarar
5 togarar öfluðu 911,3 tonn í 9 sjóferðum eða 101,3 tonn að meðaltali í túr. Breki VE 61 var hæstur með 212,8 tonn í einum túr.
Loðna
Loðnan fannst ekki í veiðanlegu ástandi allan mánuðinn, og var farið að fara um margan manninn við að rassskella sjóinn og veiða ekki neitt.
Veðrið í mánuðinum
Það eru gerðar átta athuganir á sólarhring og tekin er hæsta og lægsta athugun þann sólarhringinn og þannig eru þessir veðurdagar fundnir út. 18 dagar mældust með 9 vindstig eða meira, 5 dagar mældust með 1 vindstig eða minna. 5. jan. var loftvog lægst, 974 mm. 7. jan. var loftvog hæst, 1020 mm.

FEBRÚAR Heildarafli í mánuðinum varð 5425,1 tonn í 406 löndunum.
Netabátar
15 bátar öfluðu .2976,5 tonni í 212 róðrum eða að jafnaði 14 tonn í löndun. Sigurjón Óskarsson og áhöfn hans á Þórunni Sveinsdóttur VE 401 öfluðu 417,8 tonn í 16 róðrum en aflinn var að miklu leiti ufsi. Gandí VE 171 aflaði 357,1 tonn og Suðurey VE 500 aflaði 289,1 tonn. Suðurey var með meirihluta þorsk í sínum afla.
Botnvarpa
19 bátar öfluðu 714,4 tonn í 101 löndunum, 7,1 tonn að meðaltali. Heldur lélegur afli það hjá togbátum, því lítill sem enginn afli fékkst þegar fjaran var opnuð þann 15. Smáey VE 144 fékk 105,9 tonn í 4 róðrum, Sigurfari VE 138 fékk 80 tonn og Helga Jóh. VE 41 fékk 77,2 tonn.
Lína
10 bátar og trillur öfluðu 96,4 tonn. 7 bátar á handfærum fengu 16,3 tonn. Einn bátur á dragnót fékk 12.3 tonn. 52 bátar lönduðu 381,5 tonn í 392 róðrum.
Togarar
5 togarar öfluðu 1609,2 tonn í 14 veiðiferðum eða að jafnaði 114,9 tonn í veiðiferð.
Loðna
2. febrúar byrjaði hér mikil loðnulöndun, enda mörgum farið að lengja eftir henni. Mikil stemmning fylgir hafnarlífinu þegar traffíkin er sem mest. Löndun stóð allan mánuðinn með smá stoppum eftir því sem þrær fylltust.
Veðrið í mánuðinum
21 dagur mældist með 9 vindstig eða meira, 3 dagar mældust með 1 vindstigi eða minna. 5. feb. var loftvog lægst 960 mm. 10. feb. var loftvog hæst 1017 mm.

Eins gott að stöðugleikinn sé í lagi

MARS Heildarafli í mánuðinum varð 9.449 tonn í 778 löndunum.
Netabátar
22 bátar öfluðu 5.299,3 tonn í 417 róðrum, meðaltal 12,7 tonn í róðri.
Aflamaðurinn Sigurður Georgsson og áhöfn hans á Suðurey VE 500 fengu 568,9 tonn í 26 róðrum. Þórunn Sveinsdóttir VE 401 fékk 466.4 tonn og Gjafar VE 600 fékk 413,4 tonn. Margir aðrir fengu mjög góðan afla þannig að útlitið var mjög gott hjá netabátum.
Togbátar
20 bátar öfluðu 2.133,7 tonn í 196 róðrum, 10,9 tonn í róðri. Logi Snædal og áhöfn hans á Smáey VE 144 fengu 351.7 tonn í 7 róðrum, Frár VE 78 fékk 223 tonn og Sigurfari VE 138 fékk 218.6 tonn. Stærri togbátarnir voru yfirleitt með ágætis afla, en minni bátarnir með mjög rýran afla og réði þar sennilega mestu leiðinlegt líðarfar og lítinn fisk var að hafa á grunnslóð.
Handfæri
25 bátar og trillur öfluðu 91 tonn í 149 róðrum eða 0,6 tonn í róðri að meðaltali. Einn bátur á dragnót fékk 7,6 tonn.
Togarar
5 togarar öfluðu 1.917,4 tonn í 13 veiðiferðum eða 147,5 tonn í veiðiferð að jafnaði. Heildaraflinn af bolfiski frá áramótum var orðinn 16.741,5 tonn í 1359 löndunum.
Loðnan
Mikil löndun var í mánuðinum. Hrognataka var líka. en þar gekk á ýmsu. Um mánaðamótin var loðnuverðið orðið frekar rýrt og þeir bátar sem fengu farm fóru flestir til Færeyja. Heildaraflinn frá áramótum varð 77.928 tonn sem var mjög góð uppbót á vertíðaraflann.
Veðrið í mánuðinum 16 daga mældust 9 vindstig eða meira og 6 daga mældist 1 vindstig eða minna. 20. mars var loftvog lægst 987 mm. 6. mars var loftvog hæst 1042 mm. Mars var mjög háþrýstur.

APRÍL Heildarafli í mánuðinum var 7.030,6 tonn í 676 löndunum.
Netabátar
24 bátar öfluðu 2.649,5 tonn í 326 róðrum eða 8,1 tonn í róðri sem er 0,6 tonnum minna í róðri en í apríl 1983. Ekki er nú munurinn meiri en það, en aflasamsetningin eflaust mjög ólík. Aflamaðurinn Sigurður Georgsson og áhöfn hans á Suðurey VE 500 fengu 275,1 tonn og eru þá búnir að afla 1.219,8 tonn í vetur, sem er toppurinn í dag. Sveinn Valdimarsson og áhöfn hans á Valdimar Sveinssyni VE 22 fengu 219 tonn, og eru þá búnir að afla 1157,5 tonn í vetur. Hafa þessar tvær skipshafnir barist hvað harðast um toppinn í vetur. Gjafar VE 600 fékk 202,7 tonn í mánuðinum.
Botnvarpa
20 bátar öfluðu 2.140,1 tonn í 143 löndunum eða 15 tonn í löndun á móti 13,1 tonn í löndun 1983. Mestan afla höfðu þeir bræður Jóhannes og Ólafur Kristinssynir og áhöfnin á Helgu Jóh. VE 41 eða 223,2 tonn. Frár VE 78 221 tonn og Smáey VE 144 207,6 tonn. Ennþá var afli hjá minni togbátum frekar rýr.
Handfæri
35 bátar og trillur öfluðu 74,5 tonn í 162 róðrum eða 0,5 tonn í róðri. Fjórir á línu öfluðu 26 tonn og einn á dragnót 7,8 tonn. Af smábátum er Tvistur með mestan afla, 31,7 tonn, Skúmur með 26,8 tonn og Elding 23,2 tonn.
Togarar
5 togarar öfluðu 2132,7 tonn í 17 veiðiferðum eða 125,5 tonn í veiðiferð. Frá áramótum hefur Breki VE 61 aflað 1512,7 tonn í 9 veiðiferðum, Klakkur VE 103 1281,4 tonn í 11 veiðiferðum, Vestmannaey VE 54 1208,5 tonn í 10 veiðiferðum, Sindri VE 60 1175,3 tonn í 11 veiðiferðum og Bergey VE 544 1047,2 tonn í 12 veiðiferðum. Afli samtals í vetur 23.795,6 tonn í 2036 löndunum. Aflinn 1983 var 27.353,5 tonn í 2652 löndunum eða meiri afli og fleiri landanir en í vetur. Afli báta er 0,1 tonni meiri í vetur í löndun. Afli togara 7,1 tonni minni en í fyrra í túr.
Veðrið í mánuðinum
12 daga mældust 9 vindstig og meira. 4 daga mældist 1 vindstig eða minna. 10. apríl var loftvog lægst 982 mm. 6. apríl var loftvog hæst 1029 mm. Þessar upplýsingar eru fengnar úr bókum Óskars Sigurðssonar vitavarðar á Stórhöfða.
Það næðir oft um Stórhöfða, en það er ekki næðingur hjá honum Óskari við að skoða hans skemmtilegu veðurbækur. Eflaust eiga margir sjófarendur þakkir til hans fyrir nákvæmni og árvekni í starfi.
Að endingu óska ég öllum sjómönnum til hamingju með daginn.

Á.B.

Loðnuvertíð í fullum gangi
Friðrik Ingvarsson á Andvara

Netabátar, afli yfir 500 tonn 30/4 1984:

Netabátar Heildartonn
1. Suðurey VE 500 1.219,8
2. Valdimar Sveinss. VE 22 1.157,5
3. Þórunn Sveinsd. VE 401 1.027,6
4. Gjafar VE 600 896,8
5. GandíVE 171 848,0
6. Bjarnarey VE 501 806,6
7. Glófaxi VE 300 665,4
8. Katrín VE 47 661,6
9. Ófeigur III. VE 325 633,1
10. Gullborg VE 38 617,5
11. Ófeigur VE 324 615,9
12. Bylgja VE 75 563,1 ´

Trollbátar, afli yfir 300 tonn 30/4 1984:

Trollbátar Heildartonn
1. Smáey VE 144 686,4
2. Frár VE 78 492,9
3. Sigurfari Ve 138 492,3
4. Helga Jóh VE 41 483,6
5. Danski Pétur VE 423 463.9
6. Andvari VE 100 381,6
7. Björg VE 5 303,1
Gelluvertíð