Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1981/ Björgunartæki Sigmunds

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Kristinn Sigurðsson t.v. og Þórhallur Hálfdánarson sýna á blaðamannafundi þennan einfalda, en örugga björgunarútbúnað, sem er bæði handvirkur og alsjálfvirkur
Hér er báti sökkt, sem er með sjálfvirkan sleppibúnað í stýrishúsi
Báturinn sokkinn, gúmmíbáturínn hefur losnað og blásið upp. Skipverji, Andrés Sigurðsson, er kominn þar um borð
Einar Ólafsson skipstjóri á Kap II hefur tekið í handfang, sem er í brú og með því sjósett gúmmíbátinn
Grímur á Felli skipverji á Helgu Jó hefur tekið í handfang sem er utan á stýrishúsi. Gúmmíbáturinn þeytist í sjóinn og blœs upp.
Hér er báturinn á hvolfi. Skipverji (Sigmar Gíslason) hefur komist á kjöl og tekur í handfang, sem þar er. Við það losnar gúmmíbáturinn
Gúmmíbáturinn kemur blásinn undan bátnum og Sigmar Gíslason nær taki á honum
Skipverji hefur fallið aftur úr skutrennu. Háseti við gilsaspil hefur tekið í handfang. Við það losnar gúmmíbátur, fellur ísjóinn og blœs upp við hliðina á skipverjanum (Elíasi V. Jenssyni)

Á nýliðnum vetri hefur okkar ágæti samborgari Sigmund Jóhannsson ekki setið auðum höndum hvað varðar slysavarna- og öryggismál sjómannastéttarinnar.
Þegar skip hafa farist með snöggum hætti hefur áhöfnum þeirra oft ekki gefist tími til þess að sjósetja gúmmíbjörgunarbáta.
Sigmund hefur fundið upp einfalt og gott tæki, sem hentar öllum skipum stórum og smáum, sem sjósetur og blæs upp gúmmíbjörgunarbátana með því að kippt er í handfang, sem er á stjórnpalli eða víðar í sama skipi.
Einnig hefur Sigmund hannað útbúnað við þetta tæki, sem sjósetur og blæs upp bátana án þess að mannshöndin komi þar nærri. Þegar kassi í brú fyllist af sjó þeytist gúmmíbáturinn uppblásinn í sjóinn.
Fimmtudaginn 21. maí sl. var sýnt af 5 skipum í Vestmannaeyjahöfn hvernig tæki þessi vinna.
Hér á síðunni eru myndir frá þessari sýningu. Sjómenn, útgerðarmenn og björgunaraðilar, sem fylgdust með voru allir á einu máli um að hér væri komið tæki, sem svo oft hefði vantað þegar skip hefðu farist með snöggum hætti. Björgunarmöguleikar sjómanna hefðu vaxið mikið með tilkomu þess, og skilda yrði tækið á allan íslenska flotann hið fyrsta. Að lokinni sýningu átti fréttamaður útvarpsins, Helgi Pétursson, viðtal við Sigmund þar sem þetta kom fram.
Helgi: Þetta virðist vera einföld og góð lausn?
Svar: Menn, sem einungis hafa barnaskólapróf geta ekki látið sér detta neitt flókið í hug.
Síðar segir fréttamaður „Það hefur komið fram að þú ætlir ekki að taka nein laun fyrir þetta hvorki hugmyndina né vinnuna þína!!
Svar Sigmunds var: Mín laun verða, ef ég sé eitthvert barn taka á móti föður sínum, þó að skip hans nái ekki að landi.

Friðrik Ásmundsson