Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1976/ Frá Sjómannadeginum 1974

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Frá Sjómannadeginum 1974


Dagana 8. og 9. júní var Sjómannadagurinn hátíðlegur haldinn um land allt. Að venju hófust hátíðahöldin hér í Vestmannaeyjum fyrri daginn inni í Friðarhöfn kl. 15.00, með kappróðri og fleiru. Lengd kappróðursbrautar var um 300 metrar.

Tími róðrasveita:
1. riðill: Steinaldarmenn 1:25,1
Gullberg VE 292 1:28,8
Mömmupeyjar 1:37,4

2. riðill:
Trésmiðir 1:33,0
Fiskimjölsverksmiðjan h.f. 1:33,4
Vinnslustöðin hf 1:36,0

3. riðill (fermingardrengir):
Vesturbær 1:43,3
Austurbær 1:51,5

4. riðill (stúlkur):
Fiskiðjan hf. 2:03,8
Vinnslustöðin hf. 2:10,1

Úrslit í boðhlaupi urðu þessi:
1. Sveit Angantýs Agnarssonar 1:43,0
2. Sveit Harðar Guðjónssonar 2:07,3
3. Sveit Árna M Friðgeirssonar 2:13,1

Á Sjómannadaginn 1974 voru seinast notaðir kappróðrarbátarnir, sem Ólafur Ástgeirsson í Bæ smíðaði fyrir Sjómannadagsráð árið 1951. Myndin sýnir 2. riðil í keppni: Næstir eru keppendur Fiskimjölsverksmiðjunnar hf. á Ólafi, í miðið trésmiðir á Jötni og fjærst Vinnslustöðvarmenn á Hreifli. Framvegis munu væntanlega verða notaðir nýir bátar, steyptir í trefjaplast norður á Blönduósi, nákvæmlega eftir gömlu bátunum.(Ljósm.: Guðm. Sigfúss).

Sunnudaginn 9. júní var svo hátíðahöldunum fram haldið kl. 13:15 við Landakirkju. Að þessu sinni fóru öll útihátiðahöld dagsins fram við kirkjunauna, m. a. vegna ástands á Stakkagerðistúni vegna jarðeldanna 1973.

Veitt voru verðlaun til sigurvegaranna frá deginum áður. Heiðraðir voru aldraðir sjómenn og þeim færð skrautrituð heiðurskjöl í því skyni. Einnig fór fram athöfn til heiðurs þeim, er höfðu orðið svo lánsamir að bjarga öðrum úr sjávarháska.

Eftirtaldir aldraðir sjómenn voru heiðraðir: Karl Guðmundsson frá Goðalandi, Guðmann Guðmundsson, Sigurður Gissurarson og Kristinn Sigurðsson frá Skjaldbreið.

Þá voru heiðraðir skipverjar á Þórunni Sveinsdóttur fyrir björgun áhafnar af vélbátnum Bylgju frá Reykjavík, og ennfremur skipverjar á Sigurði Gísla fyrir björgun áhafnarinnar af Frigg í marsmánuði 1973.

Kl. 20:00 hófst venjubundin kvöldskemmtun í Samkomuhúsi Vestmannaeyja. Skemmtunin varð að þessu sinni óvenjulega stutt og fábreytt að efni. Orsökin var sú, að veður hafði spillst síðdegis og nokkur hluti skemmtikraftanna, sem pantaður hafði verið frá Reykjavík, komst ekki flugleiðis til Eyja.
Kvöldskemmtuninni lauk með því að aflakóngarnir voru heiðraðir, þeir: Daníel Traustason á Kóp VE 11 og Gunnar Jónsson á Ísleifi VE 63, og áhafnir þeirra. Sá fyrrnefndi fyrir mestan afla Eyjabáta á næstliðinni vertið, og hinn síðarnefndi fyrir mest aflaverðmæti á árinu 1973.

Loks var dansað fram undir morgun.
Á Sjómannadaginn 1974 voru fjórir aldraðir Sjómann heiðraðir fyrir gifturík störf, og ennfremur tvær skipshafnir fyrir bjarganir frá sjávarháska. Þau mistök urðu, að ekki náðust myndir af þessum athöfnum. Þess í stað birtast hér til varðveislu myndir af heiðursskjölum þeim, er afhent voru við þessi tækifæri. (Ljósm.: Sigurgeir).