Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1972/ Stýrimenn útskrifaðir frá Stýrimannaskólanum 1904

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Stýrimenn útskrifaðir frá stýrimannaskólanum í Reykjavík 1904 með hið meira stýrimannapróf.

Tveir þekktir Vestmannaeyingar útskrifuðust frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík þetta ár. Þeir Lúðvik N. Lúðvíksson, þriðji maður frá hægri i annarri röð (sjá grein um Lúðvík á bls. II) og Jón Bjarnason, annar frá vinstri í efstu röð. Jón var þekktur borgari hér í bæ undir nafninu Jón seglasaumari, en hann vann hér við seglasaum og tóvinnu margs konar fram á siðustu æviár, ennfremur kenndi hann verklega sjóvinnu hér á stýrimannanámskeiðum. Jón var tvíkvæntur; er sonur hans af fyrra hjónabandi hinn kunni læknir Bjarni Jónsson; síðari kona Jóns var Laufey Guðjónsdóttir frá Fagurhól hér í bæ, þau eignuðust tvö börn og er þeirra sonur Högni fyrrverandi stýrimaður. — Tekizt hefur að grafa upp nöfn nokkurra til viðbótar. / fremstu röð, frá vinstri: Salómon Jónsson, skútuskipstjóri á Vestfjörðum, Hann var fæddur í Barðastrandarhreppi 27/8 1879. Sá er situr í miðið er óþekktur. Yzt til hægri: Kristján S. Magnússon skútuskipstjori frá Bíldudal. Hann var sonur Magnúsar Kristjánssonar frá Lokinhömrum í Arnarfirði, sem lengi stjórnaði skútunni Rúnu og var mikill sjómaður og þótti snillingur að haga seglum. Bræður Kristjáns voru hinn landsþekkti aflamaður Ólafur Magnússon, skipstjóri á Eldborgu, og Jón Magnússon, sem fórst hér austan Vestmannaeyja í aftaka suðvestan veðri með Fossanesi, þrímastra færeyskri skútu, sem hann var fiskilóðs á. Það gerðist 6. marz 1938. Önnur röð: Yzt til hægri er Stgurður Eggertsson, feddur í Rauðasandshreppi, Barúastrandarsýslu, 21. sept. 1876. Synir hans eru Halldór E. Sigurðsson núv. fjármálaráðherra og Pétur Sigurðsson frkv.stj. í Víðínesi. Þriðja röð: Yzt til hægri er Sigurður Jóhannesson frá Höfða í Eyrarsveit, fæddur 2/2 1880. Hann var faðir Björgúlfs skrifstofustjóra hjá Samtökum Frjálslyndra ug Vinstri manna. Sigurður var skipstjóri með kútter Grímsey, sem var gerður út frá Flatey í Breiðafirði, en sú útgerð hleypti miklu lífi í athafnalíf í Flatey um skeið upp úr 1910. - Fjórða og efsta röð: Yztur til vinstri: Ingimar Bjarnason, Önundarfirði, f. 8/5 1877. Hann var með skip frá Ísafirði, og gerðist síðar bóndi og formaður í Hnífsdal. Hans synir eru Bjarni Ingimarsson, sá frægi togaraskipstjóri og aflamaður, sem lengst var með b/v Júpíter, og Halldór skipstjóri á togaranum Gylli, síðar Karlsefni. Aflamaður ágætur og traustur sjómaður, nýlátinn. — Aðrir, sem luku prófi frá Stýrimannaskólanum þetta ár og eru óþekktir á myndinni, voru (getið er fæðingarstaðar og árs): Eyjólfur Kr. Eyjólfsson, Garðaprestakalli, Gullbr.sýslu, 8/7 1880, Finnbogi Finnbogason, f. sama stað 5/1 1881, Friðgeir Guðmundsson, Súgandafirði 9/7 1878, Benedikit Árnason, Rvík, 17/12 1883, Egill Egilsson, Gaulverjabæjarsókn, Árnessýslu, 5/12 1876, Einar Einarsson, Mýrdal, V-Skaftafellssýslu, 1/12 1881, Einar V. Jóussou, Rvík, Rvík, 20/1 1885, Gísli Adólfsson. Stokkseyri, 17/3 1878, Guðmundur Magnússon, Biskupstungum, Árnessýslu, 26/10 1879, Guðmundur H. Ólafsson. Njarðvíkurhreppi, Gullbr.sýslu. 15/9 1883, Jón Guðmundsson, Garðaprestakalli, Gullbr.sýslu, 24/1 1 1875, Jón Jónsson, Borgarfirði vestra, 2/4 1874, Jón Guðmundsson Waage, Stóru Vogum, 24/11 1884, Kristján Árnason, Rvík, 4/4 1881, Kristján Karl Magnússon, Stöðvarfirði, S-Múl., 16/6 1876, Sigmundur K. Guðmundsson, Suðurfjarðarhreppi, Barðastrandars., 27/9 1872, Sigurður Á. Guðmundsson, Krísuvík, Gullbr.s., 2/8 18S3, Sigurður Oddsson, Pétursey, V-Skaftafellss., 24/4 1874, Þórarinn Bjarnason, Garðaprestakalli, Gullbr.s., 12/4 1879, Þórður Magnússon, Stöðvarfirði, S-Múlas., 13/1 1875, Þórður S. Vigfússon, Torfalækjarhr., Húnavatnss., 14/6 1881. - Geta svo menn spreytt sig á að finna fleiri á myndinni, sem eru ef til vill forfeður þeirra sjálfra; eða ráðherra og annarra þekktra manna meðal þjóðarinnar.