Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1970/ Stærð bátaflotans
Brúttórúmlestatala fiskibáta, sem eru skráðir í Vestmannaeyjum, var við síðustu áramót um 5.000 rúmlestir, með Herjólfi og Laxá, sem hér eru skráð er brúttórúmlestatalan 6.173. Auk þess róa að staðaldri frá Vestmannaeyjum nokkrir bátar, sem eru skráðir annars staðar (vægast sagt nokkuð hvimleitt um jafn ágæt aflaskip með fallegum nöfnum Vestmannaeyja).
Árið 1968 gerði Bátaábyrgðafélagið úttekt í bátaflotanum. Var þá fjöldi vélbáta, sem voru skráðir í Vestmannaeyjum og annars staðar, en róa héðan að staðaldri, 77 bátar og nímlestatala 5.890, vélarorka 25.106 hestöfl.
Þetta ár var vélbátaflotinn hér metinn á um 300 milljónir króna.
Á síðastliðinni vertíð bættust eftirtaldir bátar í flotann:
Bára VE 141 | 12 rúmlestir |
---|---|
Einir VE 180 | 63 rúmlestir |
Gullfaxi VE 102 | 140 rúmlestir |
Ingólfur VE 216 | 51 rúmlestir |
Jökull VE 15 | 35 rúmlestir |
Portland VE 304 | 10 rúmlestir |
Þórdís VE 304 | 14 rúmlestir |
Þrír þekktir útgerðarmenn eru nú að láta smíða nýja stálbáta: Óskar Matthíasson, Emil Andersen og Björn Guðmundsson. Eru þetta allt rúmlega 100 tonna skip, vönduð og glæsileg. Uppbygging bátaflotans er nú framundan, og væri mikil nauðsyn, að hér væri aðstaða til stálskipasmíða eða að minnsta kosti aðstaða til viðhalds stærstu báta. Fer geypimikið fjármagn út úr byggðarlaginu til þessara hluta.
Ársafli Vestmannaeyjabáta árið 1969:
Vertíðaraflinn 31.500 lestir
Sumar- og haustafli 20.500 lestir - (þar af humar 140)
Samtals 52.000 lestir