Sigursteinn Óskarsson (Hálsi)
Fara í flakk
Fara í leit
Sigursteinn Óskarsson netagerðarmeistari fæddist 7. ágúst 1945.
Foreldrar hans Óskar Vigfús Vigfússon, f. 25. maí 1910, d. 28. júní 1997, og Guðrún Sigríður Björnsdóttir, f. 6. febrúar 1920, d. 8. október 2011.
Þau Sigrún giftu sig, eignuðust þrjú börn, en misstu eitt þeirra tveggja ára. Þau búa í Baldurshaga.
I. Kona Sigursteins er Sigrún Ágústsdóttir, húsfreyja, f. 22. nóvember 1944.
Börn þeirra:
1. Kristín Sigursteinsdóttir, f. 18. febrúar 1964.
2. Steinunn Sigursteinsdóttir, f. 9. mars 1971, d. 21. ágúst 1973.
3. Hildur Sigursteinsdóttir, f. 23. apríl 1977.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Sigrún.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.