Sigurrós Sigurhansdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurrós Sigurhansdóttir húsfreyja fæddist 15. mars 1958 í Reykjavík.
Foreldrar hennar Sigurhans Víglundur Hjartarson verkamaður, síðan framkvæmdastjóri í smurstöðinni Klöpp í Reykjavík, f. 7. apríl 1929, d. 21. október 1980, og kona hans Helga Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 10. janúar 1931.

Sigurrós var með foreldrum sínum.
Hún varð gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum við Laugalæk, var í diplomanám í uppeldis- og kennslufræði í Kennaraháskólanum.
Sigurrós vann í Eyjum við fiskiðnað, vann við leikskólann í Kirkjugerði í 30 ár, hefur nú verið aðstoðarleikskólakennari við 5 ára-deildina í Hamarsskóla.
Þau Guðmundur giftu sig 1978, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Vestmannabraut 22d í Eyjum.

I. Maður Sigurrósar, (12. ágúst 1978), er Guðmundur Gunnar Erlingsson frá Sætúni við Bakkastíg 10, netagerðarmeistari, smiður, f. 7. febrúar 1957.
Börn þeirra:
1. Sigurhans Guðmundsson, lærir fsteignaviðskipti, f. 29 september 1979. Kona hans Sylja Markúsdóttir.
2. Helga Hrund Guðmundsdóttir kliniskur lyfjafræðingur, er í doktorsnámi, f. 4. apríl 1984. Maður hennar Jón Þór Júlíusson.
3. Andri Guðmundsson flugmaður, f. 7. júlí 1993. Sambúðarkona hans Guðbjörg Rós Guðnadóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.