Sigurlaugur Þorsteinsson
Sigurlaugur Þorsteinsson, sjómaður, leigubílstjóri, rútubílstjóri, fæddist 15. apríl 1953 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Þorsteinn Gunnarsson, sjómaður, vélstjóri, f. 1. nóvember 1932, d. 24. maí 1958, og kona hans Pálína Sigþrúður Einarsdóttir Höjgaard, húsfreyja, f. 30. janúar 1936, d. 12. desember 2024.
Börn Pálínu og Þorsteins:
1. Sigurlaugur Þorsteinsson, f. 15. apríl 1953.
2. Unnur Þorsteinsdóttir, f. 7. febrúar 1956.
Börn Pálínu og Eiríks:
3. Halldór Nielsen Eiríksson, f. 29. janúar 1961 í Eyjum. Fyrrum kona hans Guðrún Finnbogadóttir.
4. Elísa Nielsen Eiríksdóttir, f. 15. desember 1961 í Eyjum.
5. Agnes Margrét Eiríksdóttir, f. 23. október 1964.
6. Nanna Herdís Eiríksdóttir, f. 23. október 1964.
7. Ólöf Stefanía Eiríksdóttir, f. 23. október 1964.
Þau Þorgerður giftu sig , eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Þau Ruth giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu í Færeyjum og Rvk.
I. Fyrrum kona Sigurlaugs er Þorgerður Hreiðarsdóttir, f. 5. janúar 1956. Foreldrar hennar Hreiðar Ásmundsson, f. 19. febrúar 1929, d. 28. janúar 2001, og Gyða Arndal Svavarsdóttir, f. 2. febrúar 1932, d. 18. október 2018.
Börn þeirra:
1. Gyða Sigurlaugsdóttir Höjgaard, f. 7. desember 1972.
2. Þorsteinn Sigurlaugsson, f. 1. september 1975.
II. Kona Sigurlaugs er Ruth Elsa Maria Þorsteinsson frá Færeyjum, húsfreyja, f. 1. janúar 1946. Foreldrar hennar Rudolf Johannesen, f. 20. febrúar 1919, og Pálínna Johannesen, f. 5. september 1923.
Barn þeirra:
3. Kristína Polina Sigurlaugsdóttir, f. 2. febrúar 1980, d. 16. ágúst 2018.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið. Minning Pálínu.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.