Sigríður Sigtryggsdóttir (Flatey)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Sigtryggsdóttir frá Neðribæ í Flatey á Skjálfanda, húsfreyja fæddist þar 9. janúar 1894 og lést 28. febrúar 1985.
Foreldrar hennar voru Sigtryggur Sigurðsson bóndi, f. 16. júlí 1855, d. 19. júní 1939, og kona hans Ingibjörg Sigurðardóttir húsfreyja, f. 25. maí 1862, d. 7. janúar 1928.

Sigríður var með foreldrum sínum í Neðribæ og Nýjabæ í Flatey, var vinnukona á Móbergi í Húsavíkursókn 1910, gift kona í húsmennsku á Víðivöllum í Fnjóskadal 1918, húsfreyja í Vík í Flatey á Skjálfanda 1920-1951.
Kristján maður hennar drukknaði 1938. Hún bjó áfram með börnum sínum um skeið, flutti frá Flatey 1951, bjó hjá Ingibjörgu dóttur sinni og Sveinbirni á Hólagötu 23 við Gos 1973.
Sigríður flutti í Kópavog, bjó síðast að Grænutungu 8. Hún lést 1985.

I. Maður Sigríðar var Kristján Rafnsson frá Hóli í Köldukinn, S-Þing., útvegsbóndi í Vík og Nýjabæ í Flatey, f. 6. júní 1882, drukknaði 19. maí 1938. Foreldrar hans voru Rafn Ólafsson, þá vinnumaður á Hóli, síðar bóndi á Þórustöðum og Neðri-Dálksstöðum í Eyjafirði, f. 5. september 1815, d. 14. september 1886, og Sigurbjörg Una Davíðsdóttir, þá vinnukona á Hóli, síðar húsfreyja í Glaumbæjarseli í Einarsstaðasókn í S.-Þing., f. 1848, d. 21. desember 1890.
Börn þeirra:
1. Sigurður Kristjánsson sjómaður, matsveinn, útgerðarmaður, f. 2. maí 1918, d. 22. janúar 2000. Kona hans Guðrún Sveinsdóttir.
2. Ingibjörg Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 18. nóvember 1919, d. 23. apríl 2004. Maður hennar Sveinbjörn Guðmundsson.
3. Jóhanna Kristín Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1921, d. 12. október 1996. Maður hennar Guðlaugur Vigfússon.
4. Rafn Kristjánsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 19. maí 1924, d. 4. desember 1972. Kona hans Pálína Sigurðardóttir.
5. Guðrún Sigurbjörg Kristjánsdóttir, f. 27. október 1928.
6. María Kristjánsdóttir starfsstúlka á Hólagötu 23, síðar matráðskona í Keflavík, f. 25. október 1931. Barnsfeður hennar Jón Ólafsson, Hringur Hermóðsson og Eiríkur Gunnar Halldórsson.
7. Elísabet Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 20. nóvember 1934, d. 27. janúar 2009. Maður hennar Sigurður Heiðar Stanleysson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.