Sigríður Jónsdóttir (Neðri-Dal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Jónsdóttir frá Neðri-Dal í Mýrdal, húsfreyja fæddist þar 5. september 1904 og lést 1. janúar 1980.
Foreldrar hennar voru Jón Árnason bóndi í Neðri-Dal og víðar, f. 10. ágúst 1877 á Skammadalshóli í Mýrdal, d. 4. nóvember 1964, og kona hans Þórunn Gísladóttir húsfreyja, f. 10. október 1865 á Mið-Fossi í Mýrdal, d. 30. nóvember 1949.

Sigríður var með foreldrum sínum í Neðri-Dal til 1911, í Norður-Hvammi í Mýrdal 1911-1930.
Þau Þórhallur giftu sig 1930, eignuðust eitt barn og fóstruðu barn. Þau komu til Eyja 1930, bjuggu á Ármótum við Skólaveg 14 og Hásteinsvegi 9, sem þau byggðu að hluta 1932, fluttu til Reykjavíkur 1937.
Þórhallur lést 1979 og Sigríður 1980.

I. Maður Sigríðar, (1930), var Þórhallur Á. Benediktsson trésmiður frá Breiðavík á Tjörnesi, f. 21. september 1896, d. 20. janúar 1979.
Barn þeirra:
1. Jón Þór Þórhallsson forstjóri, háskólakennari í Kanada, forstöðumaður Reiknistofu bankanna m.m., f. 21. júní 1939, d. 20. september 2016. Kona hans Hrefna Beckmann, látin.
Fósturbarn þeirra 1934 var bróðurdóttir Sigríðar
2. Sigríður Halla Hermannsdóttir, f. 29. apríl 1934, lést af slysförum 2. ágúst 1938.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 27. október 2016. Minning Jóns Þórs Þórhallssonar.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.