Sigríður Inga Kristmannsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Inga Kristmannsdóttir kjóla- og klæðskerameistari, skrifstofumaður, íþróttafulltrúi ÍBV, fæddist 18. ágúst 1978.
Foreldrar hennar Jakobína Guðfinnsdóttir húsfreyja, skólaliði, f. 6. mars 1947, og Kristmann Kristmannsson múrarameistari, f. 29. ágúst 1943.

Börn Jakobínu og Kristmanns:
1. Guðfinnur Arnar Kristmannsson vélfræðingur, verkstjóri hjá Héðni í Reykjavík, f. 27. júní 1971. Kona hans Aðalheiður Jónsdóttir.
2. Sigríður Inga Kristmannsdóttir kjóla- og klæðskerameistari, skrifstofumaður, íþróttafulltrúi, f. 18. ágúst 1978, ógift.
3. Sigurleif Kristmannsdóttir húsfreyja, tómstunda- og félagsmálafræðingur, f. 22. apríl 1985. Sambýlismaður Daníel Geir Moritz.
4. Björn Kristmannsson matvælaverkfræðingur í Svíþjóð, f. 11. maí 1988. Kona hans Þórunn Día Óskarsdóttir.

Þau Einar hófu sambúð, hafa ekki eignast börn saman, en hann á fjögur börn frá fyrra sambandi. Þau búa við Illugagötu 14.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.