Sigmar Valur Hjartarson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigmar Valur Hjartarson, fiskeldisfræðingur, fyrrum útibússtjóri Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins í Eyjum, fæddist 21. október 1965.
Foreldrar hans Rósa Björg Sigurjónsdóttir, húsfreyja, þerna, starfsmaður Sjúkrahússins, f. 27. maí 1947, og fyrri maður hennar Hjörtur Marinósson, sjómaður, útgerðarmaður, f. 31. desember 1941, d. 31. janúar 2003.

Þau Dóra Guðrún giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Vallargötu 10.

I. Kona Sigmars Vals er Dóra Guðrún Þórarinsdóttir, húsfreyja, grunnskólakennari, f. 29. september 1974. Foreldrar hennar Þórarinn Guðmundsson, f. 11. ágúst 1948, d. 26. apríl 1974, og Sigurlín Árný Árnadóttir, f. 1. maí 1945.
Börn þeirra:
1. Sigurlaug Margrét Sigmarsdóttir, f. 14. febrúar 2001.
2. Valgerður Elín Sigmarsdóttir, f. 6. nóvember 2003.
3. Þórarinn Hjörtur Sigmarsson, f. 24. júní 2009.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.