Sœngurkonusteinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sængurkonusteinn er stakur steinn með grasþúfu efst, í Strembuheiði, austan við Löngulág.
„Um hann er sögn sú, sem hér fer á eftir:
Þegar Tyrkir rændu síðast í Eyjunum, fundu þeir við steininn konu, sem hafði alið barn. Annar vildi drepa hana, en hinn skar laf af skikkju sinni og gaf henni til að sveipa barnið í, og bjargaði hann bæði konunni og barninu.“ (Vísir 3.9.1914).

Sjá mynd af málverki Engilberts Gíslasonar í Bliki 1958/Engilbert Gíslason áttræður.


Heimildir