Sæmundur Benediktsson (verkamaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sæmundur Benediktsson frá Baldurshaga á Stokkseyri, sjómaður, verkamaður fæddist 6. desember 1879 í Vestra-Íragerði í Stokkseyrarhreppi og lést 5. september 1955.
Foreldrar hans voru Benedikt Benediktsson frá Móakoti í Grindavík, bátsformaður í Vestra-Íragerði á Stokkseyri, f. 22. febrúar 1850, d. 26. apríl 1908, og kona hans Elín Sæmundsdóttir frá Foki í Hraunshverfi á Eyrarbakka, húsfreyja, f. 3. desember 1848, d. 31. júlí 1942.

Sæmundur var með foreldrum sínum í Vestra-Íragerði í æsku.
Þau Ástríður giftu sig 1908, eignuðust níu börn, en misstu tvö þeirra í frumbernsku. Þau bjuggu í Baldurshaga á Stokkseyri, fluttu til Eyja 1935, bjuggu á Fagrafelli við Hvítingaveg 5 og síðar í Knarrarhöfn við Fífilgötu 8.
Sæmundur lést 1955 og Ástríður 1970.

Kona Sæmundar, (1908), var Ástríður Helgadóttir frá Helgastöðum á Stokkseyri, húsfreyja, f. 28. ágúst 1883, d. 30. nóvember 1970.
Börn þeirra:
1. Benedikt Elías Sæmundsson sjómaður, vélstjóri, f. 7. október 1907, d. 3. október 2005.
2. Guðrún Sæmundsdóttir húsfreyja, f. 19. febrúar 1909, d. 24. apríl 1993.
3. Anna Sæmundsdóttir húsfreyja, f. 21. febrúar 1909, d. 26. mars 1998.
4. Ástmundur Sæmundsson bóndi, f. 23. október 1910, d. 28. júlí 1985.
5. Ágúst Sæmundsson, f. 10. ágúst 1912, d. 12. nóvember 1912.
6. Þorgerður Sæmundsdóttir, f. 27. ágúst 1914, d. 18. nóvember 1914.
7. Þorvaldur Sæmundsson kennari, skólastjóri, bæjarfulltrúi, f. 20. september 1918, d. 12. júlí 2007.
8. Helgi Sæmundsson rithöfundur, blaðamaður, f. 17. júlí 1920, d. 18. febrúar 2004.
9. Ástbjartur Sæmundsson skrifstofumaður, framkvæmdastjóri, verslunarstjóri, aðalgjaldkeri, f. 7. febrúar 1926, d. 9. ágúst 2019.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi. Guðni Jónsson. Stokkseyringafélagið í Reykjavík 1952.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.