Matthildur Jónsdóttir Wendel (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Matthildur Jónsdóttir húsfreyja frá Háagarði fæddist 6. október 1921 í Háagarði og lést 20. febrúar 2002.
Foreldrar hennar voru Jón Sverrisson bóndi, yfirfiskimatsmaður, f. 22. janúar 1871, d. 5. mars 1968, og kona hans Solveig Jónína Magnúsdóttir húsfreyja, f. 20. ágúst 1879, d. 21. apríl 1955.

Börn Solveigar og Jóns voru:
1. Sigurður Jónsson verslunarmaður, f. 24. júlí 1898, d. 22. apríl 1962.
2. Sverrir Magnús Jónsson sjómaður, f. 25. júní 1900, drukknaði af Minervu 24. janúar 1927.
3. Elías Theodór Jónsson framkvæmdastjóri, f. 11. júní 1901, d. 28. júlí 1959.
4. Einar Jónsson skipstjóri, f. 16. desmber 1902, drukknaði af Mínervu 24. janúar 1927.
5. Solveig Magnea Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 1. nóvember 1904, d. 10. desember 1984.
6. Sigurjón Jónsson skipstjóri, síðar verkamaður, f. 18. janúar 1906, d. 5. október 1979.
7. Lilja Jónsdóttir hárgreiðslukona, f. 5. maí 1907, d. 28. desember 2006.
8. Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. september 1908, d. 24. apríl 1993.
9. Aðalheiður Svanhvít Jónsdóttir húsfreyja, f. 3. janúar 1910, d. 26. október 1946.
10. Böðvar Jónsson verksmiðjustjóri, f. 8. desember 1911, d. 18. febrúar 1997.
11. Kjartan Jónsson lyfjafræðingur, f. 1. maí 1914, d. 5. júní 2004.
12. Svanhildur Jónsdóttir húsfreyja, f. 5. október 1915, d. 11. mars 2006.
13. Rannveig Jónsdóttir húsfreyja, f. 5. október 1915, d. 23. apríl 2002.
14. Karl Jónsson rakari, kaupmaður, lögreglumaður, gangavörður, f. 11. desember 1919 í Eyjum, d. 1. maí 2011.
15. Matthildur Jónsdóttir Wendel húsfreyja, f. 6. október 1921 í Eyjum, d. 20. febrúar 2002.

Matthildur var með fjölskyldu sinni í Háagarði og síðan í Dölum. Hún fluttist til Reykjavíkur, bjó síðar á Seltjarnarnesi.

Maður hennar var Adolf Wendel (Adolf Friederich Wilhelm Olaf Reinhard Wendel) húsgagnasmiður, heildsali, f. 29. febrúar 1920, d. 11. janúar 2004.
Börn þeirra:
1. Solveig Luise Wendel Sharrett, f. 2. september 1949.
2. Harald Friðrik Wendel, f. 11. september 1953.
3. María Björk Wendel, f. 20. febrúar 1956.
4. Jón Sverrir Wendel, f. 30. júní 1959.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.