Oddný Sigurlaug Jónsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Oddný Sigurlaug Jónsdóttir frá Sauðárkróki, húsfreyja fæddist 1. apríl 1973.
Foreldrar hennar Jón Viðar Þorsteinsson Ágústsson, f. 26. maí 1952, d. 19. júní 1992, og Fanney María Stefánsdóttir, f. 29. mars 1955.

Þau Helgi Karl hófu sambúð, eignuðust eitt barn. Þau skildu.
Þau Sveinn hófu sambúð, eignuðust eitt barn. Þau skildu.
Oddný býr á Akureyri.

I. Fyrrum sambúðarmaður Oddnýjar Sigurlaugar er Helgi Karl Hafdal, bifvélavirki, f. 21. apríl 1974.
Barn þeirra:
1. Helga Ósk Helgadóttir, sjúkraliði á Egilsstöðum, f. 26. ágúst 1997.

II. Fyrrum sambúðarmaður Oddnýjar er Sveinn Kristján Jónsson, bifreiðastjóri á Akureyri, f. 31. maí 1964. Foreldrar hans Jón Ingvi Sveinsson, f. 1. mars 1940, d. 26.. mars 2010, og Kristjana Björg Pétursdóttir, f. 20. september 1940, d. 6. febrúar 1991.
Barn þeirra:
2. Björg Þóra Oddnýjardóttir, f. 15. desember 2000. Hún býr á Ólafsfirði.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.