Matthildur Gunnarsdóttir
Matthildur Gunnarsdóttir húsfreyja, tækniteiknari í Kópavogi fæddist 15. október 1958.
Foreldrar hennar Gunnar Þorbjörn Haraldsson vélstjóri, húsvörður, f. 21. apríl 1928, d. 30. desember 2010, og kona hans Jórunn Guðný Helgadóttir húsfreyja, f. 11. júní 1929, d. 3. apríl 2024.
Börn Jórunnar og Gunnars:
1. Helgi Benóný Gunnarsson stýrimaður, bóndi, verkstjóri á Hellu, f. 3. október 1952.
2. Haraldur Þorsteinn Gunnarsson smiður, verkamaður í Eyjum, f. 1. maí 1956.
3. Matthildur Gunnarsdóttir húsfreyja, tækniteiknari í Kópavogi, f. 15. október 1958.
4. Nanna Björk Gunnarsdóttir húsfreyja, verkakona í Eyjum, f. 16. ágúst 1962.
Þau Jón Gunnar giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Kópavogi.
I. Maður Matthildar er Jón Gunnar Hilmarsson pípulagningameistari, f. 18. júní 1958. Foreldrar hans Hilmar Örn Gunnarsson útibússtjóri, f. 23. janúar 1933, d. 4. október 2014, og Steinunn Jónsdóttir húsfreyja, f. 20. maí 1936.
Börn þeirra:
1. Hilmar Smári Jónsson, f. 14. nóvember 1994.
2. Gunnar Bjarki Jónsson, f. 30. ágúst 1998.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið. Minning Hilmars Arnar,
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.