Margrét Stefánsdóttir (Boðaslóð)
Margrét Stefánsdóttir húsfreyja á Boðaslóð 2 fæddist 10. febrúar 1898 á Hofi í Norðfirði og lést 18. september 1979.
Foreldrar hennar voru Stefán Þorkelsson frá Söndum í Meðallandi, vinnumaður, f. 5. maí 1845, d. 16. nóvember 1900 og síðari kona hans Jónína Sigurbjörg Jónsdóttir frá Norðfirði, f. 24. maí 1868, d. 4. desember 1942 í Eyjum.
Systir Margrétar var Guðfinna Stefánsdóttir húsfreyja á Sléttabóli, f. 11. október 1895, d. 5. maí 1971. Maður hennar var Þórður Þórðarson formaður, bróðir Sigurðar manns Margrétar.
Margrét kom frá Nesi í Norðfirði að Kerlingardal í Mýrdal með foreldrum sínum 1900, var þar til 1901, var tökubarn í Garðakoti þar 1901-1904, á Hvoli þar 1904-1908, á Reynishjáleigu þar 1908-1910, á Höfðabrekku 1910-1912.
Hún var vinnustúlka í Kerlingardal 1912-1915, vinnukona í Vík 1915-1916, í Neðri-Dal þar 1916-1919, í Suður-Hvammi þar 1919-1920.
Þau Sigurður Þórðarson eignuðust barn í Neðri-Dal 1918, en misstu það tveggja daga gamalt. Þau giftu sig 1919 og Margrét var húsfreyja í Vík 1920-1923.
Þar fæddist Sigurgeir 1920.
Hjónin fluttust til Eyja 1923 og vou leigjendur í Hlíð 1923-1924, í Ráðagerði 1925.
Síðustu tvö börn þeirra fæddust á Hrófbergi.
Þau eignuðust Hrófberg, (Skólaveg 34), og bjuggu þar. Það vildu þau stækka, en fengu ekki vegna skipulags svæðisins. Þau fengu lóð við Boðaslóð 2 og þar byggðu þau og bjuggu þar síðan.
Sigurður lést 1978 og Margrét 1979.
Maður Margrétar, (5. desember 1919), var Sigurður Þórðarson verkamaður frá Sléttabóli á Brunasandi í V-Skaft., f. 24. janúar 1894, d. 10. ágúst 1978.
Börn þeirra hér:
1. Margrét Sigurðardóttir, f. 15. nóvember 1918, d. 17. nóvember 1918.
2. Sigurgeir Sigurðsson yfirverkstjóri, f. 17. september 1920 í Vík í Mýrdal, d. 20. febrúar 1994.
3. Magnús Sigurðsson sjómaður, f. 29. apríl 1924 í Hlíð, d. 18. nóvember 1987.
4. Sigurbjörg Sigurðardóttir húsfreyja, talsímakona á Símstöðinni, f. 7. febrúar 1929 á Hrófbergi.
5. Hávarður Birgir Sigurðsson verkstjóri, f. 27. júlí 1934 á Hrófbergi.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Sigurbjörg Sigurðardóttir.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.