Margrét Jónfríður Helgadóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Jónfríður Helgadóttir, frá Ólafsfirði, húsfreyja í Eyjum og í Hfirði fæddist 16. desember 1945 og lést 18. júní 2017.
Foreldrar hennar voru Helgi Kristinn Halldórsson, f. 19. ágúst 1897, d. 27. janúar 1977, og síðari kona hans Guðfinna Jónsdóttir, f. 20. júní 1911, d. 12. nóvember 1986.
Fósturforeldrar Margrétar voru Jónas Antonsson, f. 14. ágúst 1909, d. 1. júní 1983, og Hólmfríður Jónsdóttir, f. 3. apríl 1913, d. 25. júní 1974.

Margrét var með fósturforeldrum sínum, á Ólafsfirði og á Siglufirði.

Þau Hjörtur Ásgeir giftu sig 1966, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Eyjum frá 1965 til 1967, síðan í Hfirði, bjuggu þar við Norðurvang, í húsi, sem þau byggðu.
Margrét lést 2017.

I. Maður Margrétar, (13. ágúst 1966), er Hjörtur Ásgeir Ingólfsson, frá Lukku við Strembu, vélvirki, f. 29. maí 1945 í Eyjum.
Börn þeirra:
1. Jóhanna Inga Hjartardóttir, f. 1. júlí 1966.
2. Jónas Friðrik Hjartarson, f. 28. október 1969.
3. Hjördís Ósk Hjartardóttir, f. 20. september 1978.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.