Magnús Gíslason (kerfisfræðingur)

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search

Magnús Gíslason, kerfisfræðingur fæddist 6. nóvember 1975.
Foreldrar hans Gísli Erlingsson, húsasmíðameistari, f. 31. október 1953, og síðari kona hans Þuríður Bernódusdóttir, húsfreyja, fiskverkakona, þjónustufulltrúi, f. 13. nóvember 1954.

Barn Gísla og Bryndísar:
1. Elínborg Gísladóttir Hauksdóttir húsfreyja í Hafnarfirði, f. 24. febrúar 1973 í Reykjavík. Hún er kjördóttir Halldóru Stefánsdóttur og Hauks Bergs Gunnarssonar.
Börn Gísla og Þuríðar:
2. Magnús Gíslason kerfisfræðingur í Eyjum, f. 6. nóvember 1975. Fyrrum kona hans er Fjóla Finnbogadóttir. Sambúðarkona hans Eva María Jónsdóttir.
3. Jón Helgi Gíslason, f. 11. mars 1980, málarameistari í Eyjum. Kona hans er Guðrún María Þorsteinsdóttir.

Þau Fjóla hófu sambúð, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Þau Eva María hófu sambúð, hafa ekki eignast börn. Þau búa við Fjólugötu 27.

I. Fyrrum kona Magnúsar er Fjóla Finnbogadóttir, húsfreyja, snyrtifræðingur, f. 18. júlí 1980.
Börn þeirra:
1. Mikael Magnússon, f. 24. janúar 2003.
2. Eva Magnúsdóttir, f. 10. desember 2007.

II. Sambúðarkona Magnúsar er Eva María Jónsdóttir, húsfreyja, f. 11. september 1986.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.