Lilja Alexandersdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Lilja Ingrid Alexandersdóttir.

Lilja Ingrid Alexandersdóttir frá Siglufirði, húsfreyja fæddist þar 31. október 1938 og lést 23. maí 2022 í Hraunbúðum.
Foreldrar hennar voru Alexander Ingimarsson verkamaður, f. 15. febrúar 1917, d. 24. mars 2002, og kona hans Þórleif Valgerður Friðriksdóttir húsfreyja, f. 27. nóvember 1916, d. 3. nóvember 1994.

Þau Matthías giftu sig 1959, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Fagurlyst, síðar á Boðaslóð 6 og á Minna-Núpi við Brekastíg. Árið 1971 keyptu þau Miðhús, sem var æskuheimili Matthíasar. Eftir gos bjuggu þau á Heiðarvegi 28.
Matthías lést 1984 og Lilja 2022.

I. Maður Lilju, (1959), var Matthías Guðjónsson frá Miðhúsum, sjómaður, f. 14. ágúst 1938, d. 19. mars 1984.
Börn þeirra:
1. Alexander Matthíasson, f. 11. júlí 1959. Kona hans Guðný Guðmundsdóttir.
2. Guðjón Kristinn Matthíasson, f. 30. apríl 1962, d. 21. júlí 2001. Kona hans Guðný Þórey Stefnisdóttir.
3. Þuríður Ósk Matthíasdóttir, f. 8. október 1967. Maður hennar Benedikt Þór Guðnason.
4. Lilja Matthíasdóttir, f. 15. febrúar 1971. Bansfaðir hennar Andersson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.